fim 18.mar 2010 21:18 Magnús Már Einarsson,
Lengjubikarinn: Helgi tryggði Víkingi sigur á Leikni
Helgi skoraði eina markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Helgi Sigurðsson

Helgi Sigurðsson tryggði Víkingi R. 1-0 sigur á Leikni R. í Lengjubikarnum í kvöld en leikurinn fór fram á gervigrasvelli Víkings.

Leiknismenn voru sterkari í fyrri hálfleik þar sem að Ólafur Hrannar Kristjánsson fékk besta færið en Magnús Þormar varði frábærlega í marki Víkings.

Í síðari hálfleik var meira jafnræði með liðunum og þá voru það Víkingar sem fengu hættulegri færi.

Eina markið kom um miðjan síðari hálfleik en þá kom langur bolti fram völlinn og Helgi Sigurðsson komst einn í gegn.

Eyjólfur Tómasson, markvörður Leiknis, kom langt út á móti en Helgi fór hægra megin framhjá honum og renndi boltanum smekklega í netið af nokkuð löngu færi. Þetta var fjórða mark Helga í jafnmörgum leikjum í Lengjubikarnum.

Víkingur er eftir sigurinn í kvöld í öðru sæti i riðli tvö í Lengjubikarnum en liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á mótinu og lítur vel út fyrir komandi átök í fyrstu deildinni í sumar.

Leiknismenn eru aftur á móti ennþá án stiga eftir fjóra leiki í Lengjubikarnum.
Nýjustu fréttirnar