Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 19. mars 2010 18:23
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Steve Bruce vill kaupa Alan Hutton til Sunderland
Steve Bruce, stjóri Sunderland, hefur áhuga á að kaupa skoska hægri bakvörðinn Alan Hutton frá Tottenham.

Hutton kom til Sunderland á láni fyrir nokkrum vikum en hann hefur leikið sex leiki með félaginu og staðið sig vel.

Hutton kom til Tottenham á um það bil átta milljónir punda frá Rangers árið 2008 en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Spurs og því er ekki ólíklegt að hann verði seldur í sumar.

,,Ég hef ekki rætt við Harry Redknapp til að athuga hvort að hann sé falur," sagði Bruce.

,,Ef að það yrði hægt að fá hann í sumar þá myndi ég auðvitað hafa áhuga. Hann hefur staðið sig vel hjá okkur og aðlagast liðinu mjög vel."
Slapp
banner
banner
banner