Heimild:  
fös 19.mar 2010 19:13 Magnús Már Einarsson,
Steve Simonsen til Sheffield United á láni (Staðfest)
Mynd: NordicPhotos
Sheffield United hefur fengið markvörðinn Steve Simonsen á láni frá Stoke í einn mánuð.

Simonsen hefur dottið niður goggunarröðina hjá Stoke eftir að Asmir Begovic kom frá Portmouth í janúar.

Simonsen, sem er þrítugur, fer beint inn í leikmannahóp Sheffield United fyrir leik liðsins gegn Doncaster á morgun.

Ekki er ólíklegt að Simonsen fari beint inn í byrjunarliðið þar sem að Marc Bunn var í vikunni kallaður til baka til Blackburn eftir að hafa verið á láni hjá Sheffield United.
Nýjustu fréttirnar