Heimild: Sporting Life
Harry Rednkapp, stjóri Tottenham, hefur látið miðjumanninn Adel Taarabt heyra það í kjölfar þess að leikmaðurinn lét hafa eftir sér að það hefðu verið mistök að semja við Spurs.
Taarabt er sem stendur í láni hjá QPR en í viðtali í gær sagðist hann sjá eftir að hafa ekki samið við Arsenal á sínum tíma frekar en Tottenham.
,,Hann sagði að Barcelona og Real Madrid hafi áhuga. Hann sér sjálfan sig þar á næstu leiktíð," sagði Redknapp.
,,Barcelona hefur ekki verið í símanum í dag og ekki heldur Real Madrid. Þegar að þeir hringja í okkur þá munum við biðja um mikinn pening."
,,Hann sagðist frekar hafa viljað fara til Arsenal en það er ekki sniðugt að segja það þegar að þú spilar fyrir Tottenham. Hann kemur til baka á næsta tímabili nema Barcelona eða Real taki upp símann."

