Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 19. mars 2010 18:07
Magnús Már Einarsson
Milos Tanasic kominn aftur í Þrótt (Staðfest)
Milos í leik með Njarðvík.
Milos í leik með Njarðvík.
Mynd: Valgeir Kárason
Milos Tanasic hefur gengið að nýju til liðs við Þrótt en hann kemur til félagsins frá Mjøndalen IF í Noregi.

Í fyrra lék Milos með Njarðvík í annarri deildinni áður en að hann gekk til liðs við Þrótt í júlí.

Hann lék einn leik með Þrótti í Pepsi-deildinni áður en að hann fór til Mjøndalen í september.

Milos hefur einnig leikið með KS/Leiftri og Keflavík hér á landi en þessi 21 árs gamli leikmaður er sonur Marko Tanasic sem þjálfaði Njarðvík í fyrra.
Slapp
banner