Valur 3 - 0 Selfoss
1-0 Haukur Páll Sigurðsson
2-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson
3-0 Haukur Páll Sigurðsson
1-0 Haukur Páll Sigurðsson
2-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson
3-0 Haukur Páll Sigurðsson
Haukur Páll Sigurðsson skoraði tvívegis fyrir Valsmenn þegar að liðið sigraði Selfyssinga 3-0 í A deild Lengjubikars karla í kvöld en leikið var í Egilshöll.
Selfyssingar náðu reyndar að skora fyrsta markið í kvöld en það var dæmt af eftir mikla reikistefnu. Valsmenn áttu þá hornspyrnu, boltinn fór aftur fyrir endamörk og aðstoðardómarinn flaggaði en Guðmunur Ársæll Guðmundsson dómari leiksins sá það ekki og því geystust Selfyssingar af stað í skyndisókn.
Sú sókn endaði með því að Sævar Þór Gíslason náði að skora en þá fór dómarinn og ræddi við aðstoðardómarann og í kjölfarið var dæmd markspyrna þar sem að hornspyrna Valsmanna hafði farið út af.
Haukur Páll náði síðan að koma Valsmönnum yfir en hann lagði boltann fyrir sig og skoraði með skoti fyrir utan teig eftir að Selfyssingar höfðu skallað fyrirgjöf í burtu.
Annað mark Valsmanna kom í síðari hálfleik en Guðmundur Steinn Hafsteinsson vippaði þá yfir markvörð Selfyssinga eftir að Baldur Ingimar Aðalsteinsson sendi inn fyrir.
Baldur Ingimar lagði einnig upp þriðja mark Vals en hann sendi boltann þá á Hauk Pál sem var aleinn og skallaði í fjærhornið.
Sævar Þór náði að skora fyrir Selfyssinga í síðari hálfleiknum en það mark var dæmt af vegna rangstöðu og lokatölur 3-0 fyrir Valsmenn sem eru með sjö stig eftir fjóra leiki í Lengjubikarnum. Selfyssingar eru aftur á móti með níu stig eftir fimm leiki.



