Heimild: Daily Star
Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City ætlar að ræða við Wayne Bridge varnarmann liðsins og fá hann til að skipta um skoðun og halda áfram að leika með enska landsliðinu.
Bridge hætti með landsliðinu eftir að upp komst að John Terry miðvörður liðsins hélt framhjá með kærustu hans. Mancini ætlar nú að fá hann til að hætta við að hætta.
,,Ég veit ekki hvað mun gerast en ég vona fyrir Wayne að hann skipti um skoðun því það er alltaf mikilvægt fyrir leikmann að fara á Heimsmeistaramótið," sagði Mancini í Daily Star í morgun.
,,Maður getur bara farið á eitt eða tvö Heimsmeistaramót sem leikmaður, svo ég vona að hann geti skipt um skoðun. Hann getur enn spilað fyrir England."
,,Á næsta Heimsmeistaramóti getur England unnið og fyrir leikmann þýðir það að það er mikilvægt að hann spili. Af þessari ástæðu vona ég að hann geti skipt um skoðun. Þegar Wayne kemur aftur til æfinga mun ég tala við hann um þetta."



