Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 20. mars 2010 15:15
Davíð Örn Atlason
Heimild: Soccerway 
Fletcher ætlar ekki að vanmeta Bayern Munchen
Darren Fletcher, leikmaður Manchester United segist ekki ætla að vanmeta Bayern Munchen, en þessi lið mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

,,Maður getur ofmetnast og byrjað að horfa allt of langt fram á veginn," sagði Fletcher. ,,Fólk getur sagt ýmsa hluti um dráttinn, en staðreyndin er sú að þessi lið hafa unnið stór lið á leið sinni hingað."

,,Maðu kemst ekki í átta liða eða undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með að vera með lélegt lið."

,,Það hefur sýnt sig, ef þú ferð í leik og vanmetur lið á borð við Lyon - þá dettur þú úr keppni,"
skýtur Fletcher á Real Madrid, en Madridingar duttu út fyrir Lyon í sextán liða úrslitunum.

,,Þetta er erfiður dráttur. Þetta var sennilega það erfiðasta sem við gátum fengið fyrir utan Barcelona."

,,Við spiluðum við þá á undirbúningstímabilinu og þeir hrifu okkur mjög mikið undir stjórn Louis van Gaal. Eftir jól hafa þeir verið á góðri siglingu. Þeir skilja nú hvernig Louis van Gaal vill láta þá spila."

,,Þeir eru með tvo af bestu vængmönnum heims í Robben og Ribery og skapa þeir gríðarlega mikla hættu í þessari keppni."

Slapp
banner
banner