Heimild: Reuters
Óvíst er hvort að Lionel Messi verði með Barcelona gegn Real Zaragoza á morgun þar sem að hann er með tannpínu.
Messi gat ekki æft með Barcelona í morgun og óvíst er hvort að hann geti spilað gegn Zaragoza.
,,Hann er farinn heim og við sjáum hvernig hann verður á morgun. Hann fann fyrir miklum sársauka," sagði Pep Guardiola þjálfari Barcelona við fjölmiðla eftir æfingu liðsins í morgun.
Messi hefur verið í miklu stuði að undanförnu en hann skoraði tvívegis gegn Stuttgart í vikunni og er alls kominn með átta mörk í síðustu fjórum leikjum Börsunga.

