lau 20.mar 2010 15:18 Magnús Már Einarsson,
Eggert Gunnþór hjálpaði Hearts að vinna grannaslaginn
Mynd: NordicPhotos
Eggert Gunnþór Jónsson lagði upp annað mark Hearts þegar að liðið sigraði Hibernian 2-1 í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Eggert Gunnþór skallaði hornspyrnu áfram á Gary Glen sem að kom Hearts í 2-0 á 27.mínútu, þremur mínútum eftir að Andrew Driver skoraði fyrsta markið.

Derek Riordan minnkaði muninn fyrir Hibernian í síðari hálfleik en lokatölur urðu 2-1 fyrir Hearts.

Eggert Gunnþór lék allan leikinn með Hearts í dag en hann fékk sjálfur ágætt færi til að skora.

Hearts er eftir sigurinn í sjötta sæti, sjö stigum á eftir Hibernian en sex stigum á undan St Johnstone sem er í sjöunda sætinu.
Nýjustu fréttirnar