Hermann lagði upp mark í ótrúlegum sigri Portsmouth
Fimm leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni þar sem það bar helst til tíðinda að Eiður Smári Guðjohnsen svaraði gagnrýnisröddum frá í morgun með því að skora fyrra mark Tottenham í 1-2 sigri á Stoke City á Brittania leikvangnum.
Eiður Smári byrjaði á bekknum hjá Tottenham en kom inná á 37. mínútu fyrir Roman Pavlyuchenko sem meiddist.
Strax í byrjun síðari hálfleiks kom Eiður Smári Tottenham svo yfir með frábæru skoti upp í þaknetið eftir sendingu frá Peter Crouch. Fyrsta mark Eiðs Smára í úrvalsdeildinni í fjögur ár.
Stoke jafnaði metin en Eiður Smári átti þátt í sigurmarki Tottenham þegar hann lét boltann fara eftir sendingu Benoit Assou Ekotto og Niko Karnjcar tók boltann og skoraði.
Þá lagði Hermann Hreiðarsson upp mark Tommy Smith fyrir Portsmouth í 3-2 sigri á Hull City en Hermann skallaði boltann inn í markteiginn eftir hornspyrnu þar sem Tommy Smith skoraði. Portsmouth skoraði tvö mörk í lokin og stal þar með sigrinum í leiknum.
Grétar Rafn Steinsson sá svo rautt í 2-0 tapi Bolton gegn Everton. Grétar var aftasti varnarmaður þegar hann braut á Yakubu og því fékk hann að líta rauða spjaldið. Spjaldið fékk hann þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum. Úr aukaspyrnunni sem var dæmd skoraði Mikael Arteta fyrra mark Everton.
Everton 2 - 0 Bolton Wanderers
1-0 M. Arteta ('72)
2-0 S. Pienaar ('89)
Portsmouth 3 - 2 Hull City
0-1 C. Folan ('27)
1-1 T. Smith ('37)
1-2 C. Folan ('73)
2-2 J. O'Hara ('88)
3-2 N. Kanu ('89)
Stoke City 1 - 2 Tottenham Hotspur
0-1 Eiður Smári Guðjohnsen ('46)
1-1 M. Etherington ('64, víti)
1-2 N. Kranjcar ('77)
Sunderland 3 - 1 Birmingham City
1-0 D. Bent ('5)
2-0 D. Bent ('11)
2-1 C. Jerome ('60)
3-1 F. Campbell ('88)
Wigan Athletic 1 - 0 Burnley
1-0 H. Rodallega ('90)
Aston Villa 2 - 2 Wolverhampton Wanderers
1-0 J. Carew ('16)
1-1 J. Craddock ('23)
1-2 J. Milner ('38, sjálfsmark)
2-2 J. Carew ('82)



