Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 20. mars 2010 17:42
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Ondo með þrennu í sigri Grindavíkur
Ondo skoraði þrennu fyrir Grindavík.
Ondo skoraði þrennu fyrir Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson
Þorvaldur Árnason skoraði úr vítaspyrnu fyrir Stjörnuna.
Þorvaldur Árnason skoraði úr vítaspyrnu fyrir Stjörnuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 3-2 Starnan:
1-0 Gilles Mbang Ondo ('1)
1-1 Ólafur Karl Finsen ('38)
2-1 Gilles Mbang Ondo ('43)
3-1 Gilles Mbang Ondo ('61)
3-2 Þorvaldur Árnason ('72)

Gilles Mbang Ondo skoraði þrennu þegar Grindavík vann 3-2 sigur á Stjörnunni í Lengjubikar karla í dag en leikið var í Reykjaneshöll.

Bæði lið höfðu skipt um markmann frá síðustu leikjum sínum. Hjá Grindavík lék Rúnar Dór Daníelsson í markinu í fjarveru Óskars Péturssonar en Rúnar hafði komið til félagsins frá Víði Garði í vetur.

Hjá Stjörnunni var Davíð Guðjónsson í markinu en sá vakti athygli í sumar þegar hann varð fjórði markvörður Stjörnunnar á innan við viku er hann kom inná í kjölfar brottvísunar markmanns og stóð sig frábærlega.

Hjá Grindavík vakti athygli að Ondo bræðurnir léku báðir í byrjunarliði, Gilles Mbang þekkja flestir en Loic bróðir hans sem kom til félagsins í vikunni var í miðri vörninni.

Stjarnan tefldi fram Ólafi Karli Finsen í fyrsta sinn í vetur en hann hafði komið á láni frá AZ Alkmaar í Hollandi.

Grindavíkingar komust yfir eftir 57 sekúndna leik. Gilles Mbang Ondo hirti þá boltann eftir mistök í vörn Stjörnunnar og skoraði með skoti á markið.

Þorvaldur Árnason skallaði rétt yfir mark Grindavíkur eftir rúmlega hálftíma leik eftir aukaspyrnu Bjarka Páls Eysteinssonar.

Ólafur Karl Finsen jafnað metin fyrir Grindavík svo á 38. mínútu en hann fékk þá sendingu innfyrir vörn Grindavíkur og skoraði gott mark.

Ondo kom Grindavík aftur yfir við á 43. mínútu þegar hann slapp í gegnum vörn Stjörnunnar og skoraði gott mark.

Eftir klukkutíma leik fullkomnaði Ondo svo þrennuna þegar hann nýtti sér mistök varnarmanna og Davíð markvörður kom langt út. Eftir að hafa leikið á Davíð sendi Ondo boltann í tómt markið.

Stjörnumenn fengu vítaspyrnu þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum eftir að fast skot hafði farið í hönd Orra Freys Hjaltalín. Þorvaldur Árnason tók spyrnuna og skoraði örugglega og staðan orðin 3-2 sem urðu lokatölurnar í kvöld.

Byrjunarlið Grindavíkur: Rúnar Dór Daníelsson, Óli Baldur Bjarnason (Guðmundur Egill Bergsteinsson '73), Ray Anthony Jónsson, Sveinbjörn Jónasson (Páll Guðmundsson '59), Jóhann Helgason (Auðun Helgason '84), Matthías Örn Friðriksson, Scott Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Gilles Mbang Ondo (Marko Valdimar Stefánsson '77), Jósef Kristinn Jósefsson,

Byrjunarlið Stjörnunnar: Davíð Guðjónsson, Björn Pálsson, Ólafur Karl Finsen, Daníel Laxdal, Bjarki Páll Eysteinsson (Sindri Sigurðarson '87), Jóhann Laxdal, Birgir Hrafn Birgisson (Víðir Þorvarðarson '64), Hilmar Þór Hilmarsson, Hafsteinn Rúnar Helgason, Grétar Grétarsson (Arnar Már Björgvinsson '73), Þorvaldur Árnason (Heiðar Atli Emilsson '82)

Gult spjald: Gilles Mbang Ondo, Grindavík ('56), Orri Freyr Hjaltalín, Grindavík ('72), Matthías Örn Friðriksson, Grindavík ('89)
Slapp
banner
banner