Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 20. mars 2010 18:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Harry Redknapp: Ég vil halda Eiði Smára áfram hjá Tottenham
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segist vilja kaupa Eið Smára Guðjohnsen til félagsins frá Monaco. Eiður kom til Tottenham á láni í janúar en Harry vill ganga frá lengri samningi í sumar.

Eiður kom mikið við sögu í 2-1 sigri Tottenham á Stoke í dag en hann skoraði fyrra markið og átti þátt í því síðara eftir að hafa komið inn á sem varamaður þegar að Roman Pavlyuchenko meiddist í fyrri hálfleik.

,,Ég vil halda honum hér á næsta ári. Hann er topp leikmaður með frábæra hæfileika," sagði Redknapp eftir leikinn.

,,Hann hefur stórtu hlutverki að gegna núna þegar að Jermain Defoe er meidddur."

,,Formaðurinn samdi við hann og ég veit ekki hvernig samningurinn er en við höfum klárlega áhuga (á að framlengja samninginn). Strákunum í liðinu líkar vel við hann og þeim finnst mjög gott að spila með honum."

Slapp
banner