Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 07. apríl 2010 17:04
Magnús Már Einarsson
Gilles Mbang Ondo í landslið Gabon: Stefnir á Afríkumótið 2012
Loic Ondo einnig í verkefni með U21 árs landsliði Gabon
Gilles Mbang Ondo.
Gilles Mbang Ondo.
Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson
Gilles Mbang Ondo og Loic Ondo, leikmenn Grindavíkur, eru báðir á leið í landsliðsverkefni með Gabon.

Gilles Mbang fer á æfingar með A-landsliðinu í París 25-27.apríl næstkomandi. Gabon er í 43.sæti á heimslista FIFA en leikmenn liðsins munu æfa í þrjá daga og spila æfingaleik á móti liði í frönsku 2.deildinni.

Loic Ondo gekk til liðs við Grindavík á dögunum en hann er á leið í verkefni með U21 árs landsliði Gabon sem tekur þátt í undankeppni fyrir Afríkumótið í þeim árgangi. Liðið mætir Gíneu 18.apríl og Gabon á síðan heimaleik þann 30.apríl.

Gernot Rohr tók á dögunum við A-landsliði Gabon af Alain Giresse og hann vill fá að skoða Gilles Mbang Ondo og fleiri leikmenn í æfingabúðum.

,,Hann hefur heyrt um mig og að ég hafi verið að skora mörk hér," sagði Ondo við Fótbolta.net í dag.

,,Þetta gæti verið góður möguleiki fyrir mig fyrir framtíðina og ég gæti náð sæti í liðinu fyrir Afríkumótið 2012 en það mót er í Gabon. Ég legg hart að mér á hverjum degi til að láta þennan draum rætast."

Gilles Mbang Ondo er að hefja sitt þriðja tímabil með Grindavík en þessi sterki framherji er spenntur fyrir sumrinu.

,,Já ég hlakka auðvitað til. Við höfum undirbúið okkur vel og spilað vel í Lengjubikarnum. Ég tel að við höfum sterkara lið en á síðasta ári og við munum standa okkur mun betur, ég vona það allavega," sagði Ondo léttur í bragði að lokum.
Slapp
banner
banner