Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
banner
   mið 12. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Goal.com | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Suður-Afríka
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 30. dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag byrjum við á því að kynna lið heimamanna, Suður-Afríku.
Suður-Afríka verður í A-riðli:
A-Riðill
Suður-Afríka
Mexíkó
Úrúgvæ
Frakkland

Þjálfari: Carlos Alberto Parreira
Sæti á FIFA listanum: 88
Leikjahæsti maður: Aaron Mokoena - 99
Markahæsti maður: Benni McCarthy - 32
Stærsti sigur: 5-0 á móti Ástralíu 1955
Versta tap: 5-1 á móti Ástralíu 1947

Stuðningsmenn og leikmenn Suður-Afríku vilja auðvitað sjá góðan árangur á heimavelli. Liðið er með mikinn hraða og góða tækni en vantar oft síðustu snertinguna á móti stærri liðunum. Þeir skoruðu aðeins 4 mörk í Álfukeppnini í fyrra. Liðið náði samt sem áður 4. sæti í keppninni sem verður að teljast ágætur árangur.

Benni McCarthy er hinsvegar snúinn aftur eftir sjálfskipaða útlegð eftir að hafa lent saman við fyrrum þjálfara S-Afríku. Mörkin hans verða algjör nauðsyn ef að S-Afríka ætlar að spila sig lengra en á síðustu mótum. Þá munu stuðningmenn S-Afríku vona að Steven Pienaar haldi áfram góðu formi sínu, en hann hefur átt mjög gott ár hjá Everton og skorað 4 mörk.

Liðið hefur hinsvegar aðeins unnið 2 leiki eftir Álfukeppnina, 4 jafntefli og tapað 6, þar á meðal á móti Íslandi. Spennandi verður að sjá Suður-Afríku á HM í júní, og hvort þeir geta tekið næsta skrefið í þróun þeirra á alþjóða fótbolta sviðinu.


Saga:

Suður-Afríka fékk ekki að taka þátt í undankeppninni fyrr en fyrir HM 1994. FIFA vildi ekki að styðja aðskilnaðar-stefnu Suður-Afríku og var liðið því útilokað frá keppni. Liðið hefur farið tvisvar á HM, fyrst á HM 1998 í Frakklandi þar sem að þeim tókst ekki að komast lengra en hópspilið. Á HM 2002 gekk þeim ekki mikið betur, en náðu samt sem áður fyrsta sigri þeirra á HM, 1-0 á móti Slóveníu.

Suður-Afríka hefur unnið Afríkukeppnina einu sinni: 1996; og COSAFA bikarinn, mót fyrir lönd í Suður Afríku, þrisvar: 2002, 2007 og 2008.

Gengi í undankeppninni:

Þar sem að HM verður haldið í Suður-Afríku, þá þurfti liðið ekki að taka þátt í undankeppnini.

Lykilmenn:

Steven Pienaar (Everton)
Benni McCarthy (Blackburn)

Castrol tölufræði:*

Líkur að S-A vinni HM: 0.3%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Nígería (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Argentína (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)

Tölfræði í riðlinum
1. sæti:11.3%
2. sæti18.6%
3. sæti27.6%
4. sæti42.4%


„Margir munu segja að við munum ekki geta það, en við þurfum ekki að hlusta á alla sem hafa skoðun. Það er mikilvægt að við einbeitum okkur að markmiðinu okkar, og það er að komast áfram úr riðlinum. Við trúum því að getum það.“ – Carlos Alberto Parreira

29 manna hópur

Markmenn:
Itumeleng Khune (Kaizer Chief), Moeneeb Josephs (Orlando Pirates), Shu-Aib Walters (Maritzburg United), Rowen Fernandez (Bielefeld)
Varnarmenn:

Matthew Booth (Mamelodi Sundowns), Siboniso Gaxa (Mamelodi Sundowns), Bongani Khumalo (Supersport United), Tshepo Masilela (Maccabi Haifa), Innocent Mdledle (Mamelodi Sundowns), Aaron Mokoena (Portsmouth), Bryce Moon (PAOK), Anele Ngcongca (Genk), Siyabonga Sangweni (Golden Arrows), Lucas Thwala (Orlando Pirates)

Miðjumenn:
Franklin Cale (Mamelodi Sundown), Lance Davids (Ajax Cape Town), Kagisho Dikgacoi, Andile Jali (Orlando Pirates), Thanduyise Khuboni (Golden Arrows), Reneilwe Letsholonyane (Kaizer Chiefs), Teko Modise (Orlando Pirates), Surprise Moriri (Mamelodi Sundowns), Steven Pienaar (Everton), MacBeth Sibaya (Rubin Kazan), Siphiwe Tshabalala (Kaizer Chiefs)

Sóknarmenn:
Katlego Mphela (Mamelodi Sundowns), Benni McCarthy (Blackburn), Siyabonga Nomvete (Moroka Swallows), Bernard Parker (Twente)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner