Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 13. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Goal.com | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Mexíkó
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 29 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Mexíkó.
Mexíkó verður í A-riðli:
A-Riðill
Suður-Afríka
Mexíkó
Úrúgvæ
Frakkland

Þjálfari: Javier Aguirre
Sæti á FIFA listanum: 17
Leikjahæsti maður: Claudio Suarez - 178
Markahæsti maður: Jared Borgetti - 46
Stærsti sigur: 13-0 á móti Bahamas 1987
Versta tap: 8-0 á móti 1961

Mexíkó liðið hefur staðið í ströngu undanfarin ár. Fjórir þjálfarar hafa verið við stjórnvöllinn á síðustu tveimur árum, þar á meðal Sven-Göran Eriksson. Nú er hinsvegar Javier Aguirre við stjórnvölinn, sami maður og stjórnaði liðinu við HM í Suður-Kóreu og Japan þar sem þeir komust í 16-liða úrslit.

Eftir sigur á Gold Cup mótinu, þar sem Mexíkó sigraði Bandaríkin 5-0 í úrslitaleiknum, er sjálfstraustið komið aftur hjá Mexíkó mönnum og með ungt og efnilegt lið gæti þetta verið árið sem Mexíkó kemst lengra en áður.

Einn helsti veikleiki Mexíkó liðsins er að það er oft í erfiðleikum með að skora síðastliðin ár. Allir þjálfararnir hafa verið að reyna að púsla saman sóknarlínuni en það hefur ekki tekist jafn vel og þeir hefðu óskað sér. Liðið er blanda af leikmönnum, með reynda menn eins og Guillermo Franco, Rafael Marquez og Cuauhtemoc Blanco, og ungstyrni á borð við Andres Guardado, Giovani dos Santos og Carlos Vela.

Liðið treystir mikið á eldri mennina og þeir þurfa að standa sig vel ef Mexíkó ætlar sér að komast langt, en spennandi verður að sjá hvernig ungu leikmennirnir verða á fyrsta Heimsmeistaramótinu.


Saga:

Mexíkó hefur næstum því alltaf náð að komast á HM, en á milli 1950 og 2010 hefur liðið aðeins misst af 3 mótum. Árangur þeirra á HM hefur hinsvegar ekki verið stórkostlegur, en liðið hefur aðeins komist tvisvar í 8-liða úrslit, og það var í bæði skiftin á heimavelli: 1970 og 1986. Síðustu 4 mót hefur Mexíkó aðeins komist í 16-liða úrslit.

Mexíkó hefur einu sinni unnið Álfukeppnina: 1999, og CONCACAF Gold Cup keppnina,mót fyrir lönd í Norður- og Mið-Ameríku, 8 sinnum, nú síðast 2009.


Gengi í undankeppninni:

Mexíkó byrjuðu hörmulega í undankeppninni og voru heppnir að sleppa í gegnum fyrsta hópstigið. Liðið náði ekki að vinna í síðustu þremur leikjum riðilsins og sluppu í gegn þökk sé betri markatölu en Jamaíka.

Liðinu gekk ekki mikið betur í næsta riðli, en þar unnu þeir aðeins 1 leik af fyrstu 3. Sven Göran-Eriksson var þá látinn taka pokann sinn og Javier Aguirre tók við. Hann náði að snúa kútnum við og liðið vann 6 sinnum eftir það og tryggði sér annað sætið í riðlinum og sæti á HM.

Lykilmenn:

Guillermo Franco (West Ham)
Rafael Márquez (Barcelona)
Andrés Guardado (Deportivo La Coruña)

Castrol tölufræði:*

Líkur að Mexíkó vinni HM: 1.3%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Nígería (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Argentína (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti:23.9%
2. sæti25.6%
3. sæti26.3%
4. sæti24.2%



„Þetta er ekki bara um að hafa unga leikmenn. Það mikilvægasta við þessa kynslóð er að margir leikmenn eru farnir til Evrópu, eitthvað sem gerðist ekki fyrr. Þannig eru við að nálgast hinar stóru þjóðirnar.“ – Andrés Guardado

26 manna hópur

Markmenn:
Oscar Perez (Chiapas), Guillermo Ochoa (America), Luis Ernesto Michel (Guadalajara)

Varnarmenn:

Rafael Marquez (Barcelona), Ricardo Osorio (Stuttgart), Francisco Rodriguez (PSV), Carlos Salcido (PSV), Hector Moreno (AZ Alkmaar), Paul Aguilar (Pachuca), Efrain Juarez (Pumas), Jonny Magallon (Guadalajara), Juan Carlos Valenzuela (America), Joerge Torres Nilo (Atlas), Adrian Aldrete (Morelia)

Miðjumenn:
Giovani Dos Santos (Galatasaray í láni frá Tottenham), Jonathan Dos Santos (Barcelona), Gerrardo Torrado (Cruz Azul), Israel Castro (Pumas), Andres Guardado (Deportivo La Coruna)

Sóknarmenn:
Pablo Barrera (Pumas), Adolfo Bautista (Guadalajara), Alberto Medina (Guadalajara), Guauhtemoc Blanco (Veracruz), Carlos Vela (Arsenal), Javier Hernandez (Manchester United), Guillermo Franco (West Ham)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner