Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 14. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Castrol | Goal.com 
Liðin á HM: Úrúgvæ
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 28 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Úrúgvæ.
Úrúgvæ verður í A-riðli:
A-Riðill
Suður-Afríka
Mexíkó
Úrúgvæ
Frakkland

Þjálfari: Oscar Tabarez
Sæti á FIFA listanum: 18
Leikjahæsti maður: Rodolfo Rodriguez – 79
Markahæsti maður: Hector Scarone – 31
Stærsti sigur: 9-0 á móti Bólivíu 1927
Versta tap:6-0 á móti Argentínu 1902

Úrúgvæ endaði í 5. sæti í undankeppni HM fyrir Suður Ameríks lönd, sem var í þriðja árið í röð sem liðaði endaði þar. Þjálfari liðsins er Oscar Tabarez en hann var líka við stjórnvölinn þegar Uruguay tók þátt í HM 1990.

Liðið hefur ekki komist lengra en 16 liða úrslit síðan 1970, og með lið sem skoraði 28 mörk í undankeppninni, vona stuðningsmennirnir að liðið þeirra nái betri árangri í ár.

Í liði Úrúgvæ eru margir góðir leikmenn, þar á meðal landsliðsfyrirliðinn Diego Lugano sem spilar hjá Fenerbahce, Diego Perez hjá Monaco og svo sóknarparið Diego Forlan og Luis Suarez, sóknarmaður Ajax. Liðið hefur líka verið þekkt fyrir mjög góðan liðsanda: Garra Charrua, og liðið gefst seint upp.

Aðal veikleiki þeirra er aftur á móti að frammistaða þeirra stendur ekki alltaf undir væntingum, og þótt liðið sé vel mannað frammi þá eiga þeir oft í erfiðleikum með að skora mörk. Spennandi verður að sjá hvort Luis Suarez, sem skoraði 35 mörk fyrir Ajax í ár, nái að halda áfram að skora á HM.


Saga:

Úrúgvæ er eitt sigursælasta landslið heims, en liðið hefur unnið HM tvisvar: 1930 og 1950; Ólimpíuleikana tvisvar: 1924 og 1928; og Copa America fjórtán sinnum. Síðasti bikarinn kom hinsvegar fyrir 15 árum síðan þegar þeir unnu Copa America á heimavelli.

Liðið hefur ekki staðið sig jafn vel upp á síðkastið, og þetta er einungis annað skipti sem Úrúgvæ fer á HM síðan 1990.


Gengi í undankeppninni:

Úrúgvæska liðið komst á HM eftir að liðið endaði í 5. sæti í undankeppninni, en liðið í 5. sæti þarf að spila við liðið í 4. sæti í undankeppni Norður- og Mið-Ameríku landa, sem í ár var Kosta Ríka. Úrúgvæ vann fyrri leikinn 1-0 í Kosta Ríka og gerði 1-1 jafntefli á heimavelli og vann þar með 2-1 samanlagt.

Gengi liðsins í Suður-Ameríku riðlinum var ekki jafn jafn gott og þeir vonuðust eftir, en liðið vann aðeins tvisvar á útivelli og gerði 6 jafntefli, meiri en nokkuð annað lið. Bestu leikirnir voru án efa 5-0 sigur á Bólivíu og 6-0 á móti Perú. Á móti kom að liðið tapaði líka 4-0 fyrir Brasilíu og verður að sjá hvernig liði stendur sig á móti stóru liðunum á HM.

Lykilmenn:

Diego Forlan (Atletico Madrid)
Diego Lugano (Fenerbahce)
Diego Perez (Monaco)

Castrol tölufræði:*

Líkur að Úrúgvæ vinni HM: 2.7%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Nígería (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Argentína (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti:34.4%
2. sæti27.1%
3. sæti22.2%
4. sæti16.3%



„Við höfum nokkra mjög góða leikmenn og nokkra sem eru ekki alveg jafn góðir, og það verðu mjög mikilvægt að finna réttu blönduna.“ – Oscar Tabarez

26 manna hópur

Markmenn:
Fernando Muslera (Lazio), Juan-Guillermo Castillo (Cali), Martin Silva (Defensor Sporting)

Varnarmenn:

Diego Lugano (Fenerbahce), Diego Godin (Villarreal), Andres Scotti (Colo Colo), Jorge Fucile (Porto), Martin Caceres (Juventus), Mauricio Victorino (Universidad de Chile), Maximiliano Pereira (Benfica)

Miðjumenn:
Walter Gargano (Napoli), Egidio Arevalo-Rios (Penarol), Sebastian Eguren (AIK Stockholm), Diego Perez (Monaco), Alvaro Pereira (Porto), Alvaro Fernandez (Universidad de Chile), Jorge Rodriguez (River Plate), Alvaro Gonzalez (Nacional), Ignacio Gonzalez (Valencia), Nicolas Lodeiro (Ajax)

Sóknarmenn:
Sebastian Fernandez (Banfield), Luis Suarez (Ajax), Diego Forlan (Atletico Madrid), Sebastian Abreu (Botafogo), Edinson Cavani (Palermo), Jorge Martinez (Catania)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner