Í dag eru 27 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Frakkland.
Frakkland verður í A-riðli:
A-Riðill
Suður-Afríka
Mexíkó
Úrúgvæ
Frakkland
Frakkland verður í A-riðli:
Suður-Afríka
Mexíkó
Úrúgvæ
Frakkland
Þjálfari: Raymond Domenech
Sæti á FIFA listanum: 10
Leikjahæsti maður: Lilian Thuram – 142
Markahæsti maður: Thierry Henry – 51
Stærsti sigur: 10-0 á móti Azerbaídsjan 1995
Versta tap: 17-1 á móti Danmörku 1908
Franska liðið hefur verið í rússíbanaferð síðan Raymond Domenech var ráðinn landsliðsþjálfari þeirra árið 2004, en hann hættir núna eftir mótið. Hann hefur verið mjög gagnrýndur fyrir leikstíl og val á leikmönnum.
Gengi liðsins hefur líka verið misjafnt í gegnum tíðina. Domenech þurfti að neyða nokkra leikmenn að snúa aftur í franska landsliðið fyrir síðasta HM og komst í úrslit en svo komust þeir ekki úr riðlinum við EM.
Liðið er mjög vel mannað, og hefur leikmenn að draga frá bestu liðum Evrópu. Leikmenn á borð við Henry, Ribery og Anelka munu verða mikilvægir fyrir liðið. Henry og Ribery hafa átt erfitt ár hjá Barcelona og Bayern Munchen, en Anelka er að spila í sínu fyrsta stórmóti og spennandi verður að sjá hvernig hann stendur sig í sumar.
Saga:
Gengi Frakklands hefur ekki alltaf verið gott, liðið hefur sex sinnum mistekist að komast á HM, síðast árið 1994. Liðið hefur unnið HM einu sinni, á heimavelli árið 1998 og endað í öðru sæti 2006 og tvisvar í þriðja sæti: 1956 og 1986.
Liðið hefur líka unnið EM tvisvar: 1984 og 2000; og Álfukeppnina tvisvar: 2001 og 2003.
Gengi í undankeppninni:
Gengi Frakklands í undankeppninni var betra en á fyrri árum en liðið tapaði aðeins einum leik, en það var útileikur á móti Austurríki sem endaði 3-1. Liðið endaði þó aðeins í öðru sæti, á eftir Serbíu. Tvö jafntefli á móti Rúmeníu, og eitt á móti Serbíu voru þó vonbrigði fyrir stuðningsmenn liðsins.
Frakkland þurfti þá að spila á móti Írlandi, þar sem flestir þekkja fræga sigurmarkið sem Henry lagði upp með hendinni.
Lykilmenn:
Thierry Henry (Barcelona)
Franck Ribery (Bayern Munchen)
Nicolas Anelka (Chelsea)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Frakkland vinni HM: 2.6%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Nígería (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Argentína (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti:30.4%
2. sæti28.7%
3. sæti23.9%
4. sæti17.1%
„Við erum með mjög gott lið sem er nógu gott til að vinna.“ – Franck Ribery
30 manna hópur
Markmenn:
Cedric Carrasso (Bordeaux), Mickael Landreau (Lille), Hugo Lloris (Lyon), Steve Mandanda (Marseille)
Varnarmenn:
Eric Abidal (Barcelona), Gael Clichy (Arsenal), Patrice Evra (Manchester United), Rod Fanni (Rennes), William Gallas (Arsenal), Marc Planus (Bordeaux), Adil Rami (Lille), Anthony Reveillere (Lyon), Bacary Sagna (Arsenal), Sebastien Squillaci (Sevilla)
Miðjumenn:
Abou Diaby (Arsenal), Alou Diarra (Bordeaux), Lassana Diarra (Real Madrid), Yoann Gourcuff (Bordeaux), Yann M'Vila (Rennes), Florent Malouda (Chelsea), Jeremy Toulalan (Lyon)
Sóknarmenn:
Nicolas Anelka (Chelsea), Hatem Ben Arfa (Marseille), Jimmy Briand (Rennes), Djibril Cisse (Panathinaikos), Andre-Pierre Gignac (Toulouse), Sidney Govou (Lyon), Thierry Henry (Barcelona), Franck Ribery (Bayern Munich), Mathieu Valbuena (Marseille)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




