Í dag eru 26 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Argentína.
Argentína verður í B-riðli:
A-Riðill
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Argentína verður í B-riðli:
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Þjálfari: Diego Maradona
Sæti á FIFA listanum: 7
Leikjahæsti maður: Javier Zanetti – 136
Markahæsti maður: Gabriel Batistuta – 56
Stærsti sigur: 12-0 á móti Ekvador 1945
Versta tap: 6-1 á móti Bólivíu 2009
Argentína er eitt af sigurstranglegustu liðunum á HM. Liðið hefur ekki unnið keppnina í 24 ár en núna líta þeir út fyrir að vera með hóp sem getur náð að breyta því. Liðið er þjálfað af argentísku goðsögninni Diego Maradona, og þótt að gengi hans með liðinu verið flekkótt og nokkrar efasemdar ákvarðanir hafa verið teknar, þá hefur fólkið, og liðið fulla trú á Diego og liðinu.
Þetta lið er frábærlega mannað, með besta leikmann heims, Lionel Messi í sóknarlínuni, sterka varnarmenn (Samuel og Demichelis), og skapandi miðju (Mascherano og Veron). Aðal áhyggju efnið verður að teljast markvarðarstaðan, en engin af þeim þremur sem hafa verið valdir hafa spilað meira en 5 landsleiki fyrir hönd Argentínu.
Liðið vantar líka leikstíl, en það hafa verið yfir 100 leikmenn valdir í liðið yfir síðustu 12 mánuðina, en það er eitthvað sem Maradona verður að bæta fyrir mót.
Saga:
Liðið hefur unnið HM tvisvar: 1978 og 1986. Liðinu hefur líka aðeins einu sinni mistekist að komast á HM, en það var árið 1970.
Argentína hefur unnið Copa America 14 sinnum, Ólimpíuleikana tvisvar, og álfukeppnina einu sinni.
Gengi í undankeppninni:
Argentína tryggði sér sæti á HM í sumar í síðasta leik liðsins í undankeppninni, þegar það vann Úrúgvæ, sem endaði í 5. sæti, 1-0. Liðið tapaði alls 6 leikjum í undankeppninni, þar á meðal 6-1 á móti Bólivíu, sem er eitt versta tap í sögu liðsins.
Liðið vann aðeins 2 af 9 útileikjum í undankeppninni, sem verður að teljast dapurt, en liðið tapaði aðeins einum leik á heimavellli.
Lykilmenn:
Lionel Messi (Barcelona)
Javier Mascherano (Liverpool)
Juan Sebastian Veron (Estudiantes)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Argentína vinni HM: 7.5%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Frakkland (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Úrúgvæ (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti:54.2%
2. sæti24.8%
3. sæti13.7%
4. sæti7.3%
„Argentína þarf þennan titil eftir 24 ár, og ef við höldum áfram að spila vel þá getum við það.“ – Diego Maradona
30 manna hópur
Markmenn:
Sergio Romero (AZ Alkmaar), Mariano Andujar (Catania), Diego Pozo (Colon)
Varnarmenn:
Nicolas Otamendi (Velez Sarsfield), Martin Demichelis (Bayern Munich), Walter Samuel (Inter Milan), Gabriel Heinze (Marseille), Nicolas Burdisso (Roma), Fabricio Coloccini (Newcastle), Ariel Garce (Colon), Juan Insaurralde (Newell's Old Boys), Clemente Rodriguez (Estudiantes)
Miðjumenn:
Jonas Gutierrez (Newcastle), Juan Sebastian Veron (Estudiantes), Jose Sosa (Estudiantes), Javier Mascherano (Liverpool), Angel Di Maria (Benfica), Javier Pastore (Palermo), Sebastian Blanco (Lanus), Maxi Rodriguez (Liverpool), Juan Mercier (Argentinos), Jesus Datolo (Olympiakos), Mario Bolatti (Fiorentina)
Sóknarmenn:
Lionel Messi (Barcelona), Gonzalo Higuain (Real Madrid), Carlos Tevez (Manchester City), Diego Milito (Inter Milan), Sergio Aguero (Atletico Madrid), Martin Palermo (Boca Juniors), Ezequiel Lavezzi (Napoli)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




