Í dag eru 25 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Nígeríu.
Nígería verður í B-riðli:
A-Riðill
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Nígería verður í B-riðli:
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Þjálfari:Lars Lagerbäck
Sæti á FIFA listanum: 20
Leikjahæsti maður: Mudashiru Lawal – 86
Markahæsti maður: Rashidi Yekini – 37
Stærsti sigur: 10-1 á móti Benín 1959
Versta tap: 7-0 á móti Gana 1955
Nígería réð Lars Lagerbäck í febrúar í ár eftir að hafa rekið Shuaibu Amodu. Lagerbäck hætti með sænska landsliðinu eftir að hafa mistekist að komast á HM, sem var í fyrsta skiptið sem að honum mistekst að fara með Svíþjóð á stórmót.
Lagerbäck er ekki kannski mest spennandi kosturinn sem landsliðsþjálfari, en hann er stöðugur þjálfari sem gæti verið einmitt það sem þetta lið vantar.
Nígeríska liðið vantar ekki sóknarmenn, en í 30 manna liðinu sem Lagerbäck valdi, eru 10 sóknarmenn. Sóknarbolti er aðal taktíkin hjá Nígeríu, en liðið treystir oft á gæði eins leikmanns til að hjálpa þeim frekar en liðsheildin.
Vörnin hjá Nígeríu er ekki jafn traust og sóknin, en ekkert miðvarðarpar hefur verið valið, sem gæti orðið erfitt þegar liðið fer í stórmót.
Saga:
Nígería er að taka þátt í fjórða HM sínu í sumar, en liðið hefur ekki verið á HM síðan 2002, þar sem þeim mistókst að komast úr riðlinum. 1994 og 1998 komst Nígería í 16-liða úrslit, en lengri hefur liðið ekki komist.
Nígería hefur sigrað Afríkukeppnina tvisvar: 1980 og 1994, og þeir unni Ólimpíuleikana árið 1996.
Gengi í undankeppninni:
Liðið komst á HM með því að vinna B-riðil í undankeppninni fyrir Afríku lönd, á undan Túnis, Mósambík og Keníu. Liðið var ósigrað í riðlinum en þökk sé þremur jafnteflum, þar á meðal 2 á móti Túnis, þurfti Nígería að sigra Keníu og vona að Túnis missti stig á móti Mósambík.
Túnis tapaði 1-0 á móti Mósambík, og Nígería sigraði Keníu 3-2 í æsispennandi leik þar sem Obafemi Martins skoraði sigurmarkið á 81. mín.
Lykilmenn:
Osaze Odemwingie (Locomotiv Moscow)
Obafemi Martins (Wolfsburg)
Ikechukwu Uche (Real Zaragoza)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Nígería vinni HM: 1.1%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Frakkland (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Úrúgvæ (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti:18.5%
2. sæti28.9%
3. sæti29.2%
4. sæti23.5%
„Ef þú trúir ekki að þú getur unnið leiki í keppninni sem lið og sem þjálfari, þá áttu ekki skilið að vera í keppninni.“ – Lars Lagerbäck
30 manna hópur
Markmenn:
Vincent Enyeama (Hapoel Tel Aviv), Dele Ayenugba (Beni Yehuda FC), Bassey Akpan (Bayelsa United), Austine Ejide (Hapoel Petah Tikva)
Varnarmenn:
Taye Taiwo (Marseille), Elderson Echiejile (Rennes), Chidi Odiah (CSKA Moscow) Onyekachi Apam (Nice), Joseph Yobo (Everton), Daniel Shittu (Bolton), Ayodele Adeleye (Sparta Rotterdam), Rabiu Afolabi (Salzburg), Peter Suswan (Lobi Stars)
Miðjumenn:
Kalu Uche (Almeria), Dickson Etuhu (Fulham), John Obi Mikel (Chelsea), Sani Kaita (Alaniya), Lukman Haruna (Monaco), Ayila Yussuf (Dynamo Kiev), Peter Osaze (Lokomotiv Moscow)
Sóknarmenn:
Yakubu Ayegbeni (Everton), Victor Anichebe (Everton), Chinedu Obasi (Hoffenheim), Nwankwo Kanu (Portsmouth), Obafemi Martins (Wolfsburg), Ideye Brown (Sochaux), Ikechukwu Uche (Zaragoza), John Utaka (Portsmouth), Peter Utaka (Odense), Victor Obinna (Malaga)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.



