Í dag eru 24 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Suður-Kóreu.
Suður-Kórea verður í B-riðli:
B-Riðill
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Suður-Kórea verður í B-riðli:
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland
Þjálfari:Huh Jung-Moo
Sæti á FIFA listanum: 47
Leikjahæsti maður: Hong Myung-Bo – 136
Markahæsti maður: Cha Bum-Kun – 55
Stærsti sigur: 16-0 á móti Nepal 2003
Versta tap: 12-0 á móti Svíþjóð 1948
Suður-Kórea náði frábærum árangri á HM 2002 þegar liðið endaði í 4. sæti en liðið hefur ekki náð að endurtaka þann árangur síðan þá.
Þjálfari liðsins, Huh Jung-Moo, sem hefur verið við stjórn síðan 2007 og hefur gengið vel en liðið var ósigrað í 27 leikjum. Jung-Moo leggur áherslu á sterka vörn og liðið hleypti aðeins inn 7 mörkum í 14 leikjum í undankeppninni.
Annar styrkur landsliðsins er að liðið er með frábæran liðsanda. Liðið vinnur fyrir stuðningsmennina og hvorn annan. Liðið er hinsvegar frekar stutt og á oft í vandræðum með föst leikatriðið. Munurinn á leikmönnunum í byrjunarliðinu og á bekknum er mikill og það munu verða vandræði í liðinu ef að það verða meiðsli.
Saga:
Liðið komst fyrst inn í HM árið 1954. Það tók svo 32 ár að komast aftur á HM þar sem liðið náði í fyrsta stigið eftir jafntefli á móti Búlgaríu. Liðinu hefur alltaf mistekist að komast úr riðlinum nema 2002 þegar þeir náðu 4. sætinu.
Suður-Kórea hefur unnið Asíu bikarinn tvisvar: 1956 og 1960, og Austur-Asíu keppnina þrisvar: 1990, 2003 og 2008.
Gengi í undankeppninni:
Suður-Kórea endaði í fyrsta sæti í riðlinum sínum í undankeppni í Asíu. Liðið var taplaust en þeir gerðu 4 jafntefli. Þeir voru í erfiðum riðli með Sádí-Arabíu, Íran, Norður-Kóreu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Lykilmenn:
Park Ji-Sung (Manchester United)
Park Chu-Young (AS Monaco)
Lee Chung-Yong (Bolton Wanderers)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Suður-Kórea vinni HM: 0.2%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Frakkland (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Úrúgvæ (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti:8.8%
2. sæti18.7%
3. sæti28.9%
4. sæti43.5%
„Ég held að það verði erfitt fyrir Asíu liðin að ná langt í keppninni. Samt held ég að heimurinn mun sjá hversu langt liðin frá Asíu hafa komið.“ – Lee Young-Pyo
26 manna hópur
Markmenn:
Lee Woon-jae (Suwon), Kim Young-kwang (Ulsan), Jung Sung-ryong (Seongnam)
Varnarmenn:
Kwak Tae-hwi (Kyoto), Kim Dong-jin (Ulsan), Kim Hyung-il (Pohang), Oh Beom-seok (Ulsan), Lee Young-pyo (Al Hilal), Lee Jung-soo (Kashima Antlers), Hwang Jae-won (Pohang), Cha Doo-ri (Freiburg), Cho Yong-hyung (Jeju)
Miðjumenn:
Koo Ja-cheol (Jeju), Ki Sung-yong (Celtic), Kim Bo-kyung (Oita), Kim Nam-il (Tom Tomsk), Shin Hung-min (Pohang), Kim Jae-sung (Pohang), Kim Jung-woo (Gwangju), Lee Chung-yong (Bolton), Park Ji-sung (Manchester United)
Sóknarmenn:
Park Ju-young (Monaco), Ahn Jung-hwan (Dalian Shide), Lee Seung-ryul (FC Seoul), Yeom Ki-hun (Suwon), Lee Keun-ho (Jubilo Iwata), Lee Dong-guk (Jeonbuk)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.

