Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 19. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Grikkland
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 23 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Grikklands.
Grikkland verður í B-riðli:
B-Riðill
Argentína
Nígería
Suður-Kórea
Grikkland

Þjálfari: Otto Rehhagel
Sæti á FIFA listanum: 12
Leikjahæsti maður: Theodoros Zagorakis – 120
Markahæsti maður: Nikos Anastopoulos – 29
Stærsti sigur: 8-0 á móti Sýrlandi 1939
Versta tap: 11-0 á móti Ungverjalandi 1938

Grikkland er snúið aftur á heimssviðið, en liðið hefur ekki tekið þátt í HM í 16 ár. Otto Rehhagel hefur frábæra hluti með gríska liðinu en eins og mönnum er kunnugt unnu Grikkland Evrópumótið árið 2004.

Rehhagel leggur mikla áherslu á sterka vörn og harðan leikstíl. Rehhagel notar 3 miðverði, eða catenaccio kerfi, eins og Inter notaði 1967, þegar Helenio Herrera var við stjórnvölin.

Margir hafa sakað grikki um að spila leiðinlegan fótbolta, en liðið á í miklum erfiðleikum að skora og treystir mikið á föst leikatriði. Í sókninni eru margir stórir og sterkir menn á borð við Charisteas og Samaras en það vantar skapandi leikmann.

Sotiris Ninis er eitt mesta efni í gríska boltanum og mun gefa þeim aðra vídd í sóknarleiknum en hann hefur ekki fengið að spila mikið í landsliðinu. Langir boltar og harður varnarleikur mun einkenna leik Grikkja í sumar.

Saga:

Þetta er aðeins í annað skiptið sem Grikkland kemst á HM, en fyrsta skiptið var 1994. Þá gekk þeim ekki vel og fengu á sig 10 mörk án þess að skora eitt einasta.

Grikkir unnu EM 2004, eitthvað sem enginn átti von á, og það er eini bikarinn sem liðið hefur unnið.

Gengi í undankeppninni:

Grikkland endaði í 2. sæti í riðlinum sínum sem að var talinn frekar léttur, en aðal keppinautur þeirra var Sviss, en þeir unnu riðilinn. Grikkland tapaði tvisvar á móti Sviss en það voru einu töp liðsins í undankeppninni.

Grikkland fór þá í umspil um sæti á HM og mættu þar Úkraínu. Liðin gerðu 0-0 jafntefli í Aþenu en í grikkir fóru með sigur á hólmi í Donetsk, þar sem þeir unnu 1-0.

Lykilmenn:

Giorgos Karagounis (Panathinaikos)
Sotirios Kyrgiakos (Liverpool)
Sotiris Ninis (Panathinaikos)

Castrol tölufræði:*

Líkur að Grikkland vinni HM: 0.8%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Frakkland (16 liða úrslit)
• Þýskaland (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Úrúgvæ (16 liða úrslit)
• England (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti:18.5%
2. sæti27.5%
3. sæti28.3%
4. sæti25.7%






„Ef þú ert í fyrsta sæti, þá hefurðu rétt fyrir þér, svo ég hef rétt fyrir mér.“– Otto Rehhagel

30 manna hópur

Markmenn:

Michalis Sifakis (Aris Salonika), Alexandros Tzorvas (Panathinaikos), Kostas Chalkias (PAOK Salonika)

Varnarmenn:

Giorgos Seitaridis (Panathinaikos), Loukas Vintra (Panathinaikos), Evangelos Moras (Bologna), Socrates Papastathopoulos (Genoa), Sotiris Kyrgiakos (Liverpool), Avraam Papadopoulos (Olympiakos), Vasilis Torosidis (Olympiakos), Nikos Spiropoulos (Panathinaikos), Stelios Malezas (PAOK Salonika), Giorgos Tzavellas (Panionios), Kostas Manolas (AEK Athens), Giorgos Galitsios (Olympiakos), Stergos Marinos (Panathinaikos)

Miðjumenn:
Kostas Katsouranis (Panathinaikos), Alexandros Tziolis (Siena), Giorgos Karagounis (Panathinaikos), Sotiris Ninis (Panathinaikos), Christos Patsatzoglou (Omonia), Grigoris Makos (AEK Athens), Sakis Prittas (Aris Salonika), Lazaros Christodoulopoulos (Panathinaikos)

Sóknarmenn:
Angelos Charisteas (Nuremberg), Dimitris Salpigidis (Panathinaikos), Pantelis Kapetanos (Steaua Bucharest), Theofanis Gekas (Hertha Berlin), Giorgos Samaras (Celtic), Kostas Mitroglou (Olympiakos)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að S-Afríka vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að S-Afríka lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner