Í dag eru 22 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Englands.
England verður í C-riðli:
C-Riðill
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
England verður í C-riðli:
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
Þjálfari: Fabio Capello
Sæti á FIFA listanum: 8
Leikjahæsti maður: Peter Shilton – 125
Markahæsti maður: Sir Bobby Charlton – 49
Stærsti sigur: 13-0 á móti Norður-Írland 1882
Versta tap: 7-1 á móti Ungverjalandi 1954
Englendingar hafa oft verid sigurvissir fyrir stórmót, en oftar en ekki hafa þessar væntingar endað í vonbrigðum. Síðan Fabio Capello var ráðinn sem landsliðsþjálfari Englendinga, hafa þeir spilað mjög vel, og stuðningsmennirnir eru byrjaðir að láta sig dreyma um annan HM titil.
England eru stöðugri, þökk sé Capello, og það hjálpaði þeim að spila frábærlega í undankeppninni. Capello leggur mikla áherslu á taktík, og þótt það vanti stundum heimsklassa menn í sumar stöður, þá vita menn hvað hlutverk þeirra er á vellinum.
Það eru einning margir leiðtogar inn á vellinum, eins og Gerrard, Terry og Ferdinand, og fyrir vikið er England skipulagt lið.
Það eru hinsvegar veikleikar í liðinu, þar sem það vantar stundum skapandi leikmenn í liðið, leikmenn sem geta farið framhjá varnarmönnum hins liðsins. Svo hafa nokkrir leikir á móti stórum þjóðum valdið áhyggjum meðal stuðningsmanna, en þar hefur England verið útspilað.
Saga:
England sótti ekki um HM sæti fyrr en 1950, en síðan þá hefur þeim aðeins mistekist að komast á keppnina þrisvar: 1974, 1978 og 1994.
England hafa einu sinni unnið HM, 1966, en fyrir utan þá og 1990 hafa þeir ekki komist lengra en 8 liða úrslit.
England hefur aldrei unnið EM, en lenti í 3. sæti árið 1968, en þeir unnu Ólimpíuleikana 1908 og 1912.
Gengi í undankeppninni:
England komst nokkuð örugglega úr riðlinum sínum í undankeppninni, en liðið vann 9 sinnum og tapaði einu sinni, en það var 1-0 á móti Úkraínu. Liðið skoraði einnig 34 mörk og fékk á sig aðeins 6.
Liðið vann til að nefna Króatíu 9-2 samanlagt yfir 2 leiki í riðlinum, en þeir enduðu í þriðja sæti.
Lykilmenn:
John Terry (Chelsea)
Steve Gerrard (Liverpool)
Wayne Rooney (Manchester United)
Castrol tölufræði:*
Líkur að England vinni HM: 10.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Ástralía (16 liða úrslit)
• Úrúgvæ (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Þýskaland (16 liða úrslit)
• Úrúgvæ England (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti:63.6%
2. sæti26.5%
3. sæti7.7%
4. sæti2.1%
„Við viljum bara taka næsta skrefið á HM og vinna þetta fyrir stuðningsmennina“ – Theo Walcott
30 manna hópur
Markmenn:
Joe Hart (Manchester City), David James (Portsmouth), Robert Green (West Ham)
Varnarmenn:
Leighton Baines (Everton), Jamie Carragher (Liverpool), Ashley Cole (Chelsea), Michael Dawson (Tottenham), Rio Ferdinand (Manchester United), Glen Johnson (Liverpool), Ledley King (Tottenham), John Terry (Chelsea), Matthew Upson (West Ham), Stephen Warnock (Aston Villa)
Miðjumenn:
Gareth Barry (Manchester City), Michael Carrick (Manchester United), Joe Cole (Chelsea), Steven Gerrard (Liverpool), Tom Huddlestone (Tottenham), Adam Johnson (Manchester City), Frank Lampard (Chelsea), Aaron Lennon (Tottenham), James Milner (Aston Villa), Scott Parker (West Ham), Theo Walcott (Arsenal), Shaun Wright-Phillips (Manchester City)
Sóknarmenn:
Darren Bent (Sunderland), Peter Crouch (Tottenham), Jermain Defoe (Tottenham), Emile Heskey (Aston Villa), Wayne Rooney (Manchester United)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




