Í dag eru 21 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Bandaríkjana.
Bandaríkin verður í C-riðli:
C-Riðill
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
Bandaríkin verður í C-riðli:
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
Þjálfari: Bob Bradley
Sæti á FIFA listanum: 14
Leikjahæsti maður: Cobi Jones – 164
Markahæsti maður: Landon Donovan – 42
Stærsti sigur: 8-0 á móti Barbados 2008
Versta tap: 11-0 á móti Noregi 1948
Bandaríkin eru eitt af mest vaxandi landsliðum í heimi. Þessi vöxtur tafðist eilítið 2006 þegar liðið náði ekki að byggja ofan á góðan árangur frá HM 2002. Álfukeppnin 2009 sýndi þó að þetta lið getur sigrað hvaða lið sem er þegar þeir vinna sem lið og sýna smá hörku.
Landsliðsþjálfarinn, Bob Bradley, hefur gert ágæta hluta með liðinu síðan að hann tók við því eftir HM 2006. Liðið hefur aðeins tapað 6 leikjum síðan janúar 2007, en unnið 34. Það eru þó til þeir sem gagnrýna Bradley fyrir að vera of varkár, og verður hann að standa sig í sumar til að endanlega þagga niður í þeim.
Það eru kannski ekki mörg nöfn í liðiðinu sem evrópskir fótbolta áhugamenn þekkja, en liðið gat samt sem áður unnið Spánverja í Álfukeppninni í fyrra, og töpuðu naumlega fyrir Brasilíu í úrslitinum eftir að hafa verið 2-0 yfir.
Einn helsti veikleiki liðsins er þó að liðið á oft með að skora, en Landon Donovan hefur oft þurft að bera liðið í sókninni. Spurning verður hvaðan mörkin koma í sumar.
Saga:
Þetta verður í 8. skiptið sem að Bandaríkin fara á HM, og jafnframt sjötta skiptið í röð, en liðið komst líka á HM 1930 og 1950.
Besti árangur liðsins á HM var 1930 þegar þeir lentu í 3. sæti.
Liðið hefur fengið brons og silvur á Ólimpíuleikunum, og unnið Norðurameríku bikarinn 4 sinnum: 1991, 2002, 2005 og 2007.
Gengi í undankeppninni:
Bandaríkjunum gekk vel í undankeppninni, en liðið tapaði aðeins tvisvar, en eitt tapað var þó mjög óvænt á móti Kosta Ríku. Liðið fékk hinsvegar á sig heil 13 mörk í 10 leikjum, sem var meira en hin liðin í öðru og þriðja sæti riðilsins.
Liðið tryggði sér sæti á HM með 3-2 sigri í næstsíðasta leiknum á móti Hondúras, og tryggði svo fyrsta sætið fjórum dögum seinna þegar þeir gerðu spennandi jafntefli við Kosta Ríku, þar sem Bornstein skoraði fyrir Bandaríkin á 94. mín.
Lykilmenn:
Tim Howard (Everton)
Landon Donovan (Los Angeles Galaxy)
Carlos Bocanegra (Stade Rennais)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Bandaríkin vinni HM: 2.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Ástralía (16 liða úrslit)
• Úrúgvæ (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Þýskaland (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti:28.6%
2. sæti44.4%
3. sæti19.2%
4. sæti7.8%
„Það sem við höfum lært er að við getum keppt við, og unnið, hvaða lið í heimi ef við spilum eins vel og við getum. Það eru ekki mörg lið í heiminum sem geta sagt það.“ – Landon Donovan
30 manna hópur
Markmenn:
Brad Guzan (Aston Villa), Tim Howard (Everton), Marcus Hahnemann (Wolves)
Varnarmenn:
Carlos Bocanegra (Rennes), Jonathan Bornstein (Chivas USA), Steve Cherundolo (Hannover), Jay DeMerit (Watford), Clarence Goodson (IK Start), Chad Marshall (Columbus Crew), Oguchi Onyewu (AC Milan), Heath Pearce (FC Dallas), Jonathan Spector (West Ham)
Miðjumenn:
DaMarcus Beasley (Rangers), Alejandro Bedoya (Orebro), Michael Bradley (Borussia Monchengladbach), Ricardo Clark (Houston Dynamo), Clint Dempsey (Fulham), Landon Donovan (Los Angeles Galaxy), Maurice Edu (Rangers), Benny Feilhaber (Aarhus), Stuart Holden (Bolton), Sacha Kljestan (Chivas USA), Robbie Rogers (Columbus Crew), Jose Torres (Pachuca)
Sóknarmenn:
Jozy Altidore (Villarreal), Edson Buddle (Los Angeles Galaxy), Brian Ching (Houston Dynamo), Robbie Findley (Real Salt Lake), Herculez Gomez (Puebla), Eddie Johnson (Aris Thessaloniki)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




