Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 22. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Alsír
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 20 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Alsír.
Alsír verður í C-riðli:
C-Riðill
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía

Þjálfari: Rabah Saadaney
Sæti á FIFA listanum: 31
Leikjahæsti maður: Mahieddine Meftah – 107
Markahæsti maður: Abdelhafid Tasfaout – 36
Stærsti sigur: 15-1 á móti Jemen 1973
Versta tap: 4-0 á móti Egyptalandi 2010

Alsír tekur þátt í sínu þriðja HM í sumar, en liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótinu hingað til. Liðið á varla von á mikið betri árangri í sumar, en samkvæmt Castrol þá eru 0% líkur að Alsír menn vinni HM.

Til þess að liðið nái góðum árangri þarf liðið að sigrast á nokkrum veikleikum sem hefur plagað þá. Alsír hafa einungis unnið þrisvar á útivelli síðan 2003, og liðið vantar almennilegan sóknarmann.

Liðið hefur afturámóti sýnt mjög góðan liðsanda og betri fótbolta en oft áður. Með Karim Ziani á miðjunni að stjórna liðinu, hefur Alsír sýnt marga góða, og fólkið er bjartsýnt um áframhaldandi velgengni, og jafnvel er von um að lið komist úr riðlinum í fyrsta sinn.

Saga:

Alsír hefur einungis safnað 7 stigum úr tveimur HM mótum, 1982 og 1986, en eitt stærsta augnablik í sögu Alsír var á HM í 1982 þegar liðið sigraði Vestur-Þýskaland 2-1.

Alsír hafa unnið Afríkukeppnina einu sinni, á heimavelli árið 1990.

Gengi í undankeppninni:

Það voru ekki margir sem áttu von á að Alsír mundi komast úr riðlinum sínum í undankeppninni, en liðið var með margföldum Afríku meisturum Egyptalands í riðli.

Æsispennandi riðlakeppni endaði þegar Egyptland vann Alsír 2-0, en það þýddi að bæði liðin voru í nákvæmlega sömu stöðunni, og þurfti að spila annan leik.

Alsír vann þann leik 1-0, en eftir leikinn voru mikil læti í stuðningmönnum beggja liða.

Lykilmenn:

Antar Yahia (VfL Bochum)
Karim Ziani (VfL Wolfsburg)
Rafik Saifi (Al Khor, Qatar)

Castrol tölufræði:*

Líkur að Alsír vinni HM: 0.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Serbía (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Þýskaland (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti:28.6%
2. sæti3.2%
3. sæti34.0%
4. sæti50.3%






„Við viljum vinna alla leikina okkar. Ég vil alltaf fara af vellinum sem sigurvegari. Raunhæft takmark er að komast í 16-liða úrslit.“ – Karim Matmour

30 manna hópur

Markmenn:
Faouzi Chaouchi (Entente Setif), Lounes Gaouaoui (ASO Chlef), Rais Ouheb Mbouli (Slavia Sofia), Mohamed Lamine Zemmamouche (Mouloudia

Varnarmenn:
Habib Belaid (Boulogne-sur-Mer), Nader Belhadj (Portsmouth), Majid Bougherra (Rangers), Rafik Halliche (Nacional), Abdelkader Laifaoui (Entente Setif), Carl Medjani (Ajaccio), Mohamed Meftah (JS Kabylie), Djamel Mesbah (Lecce), Hocine Metref (Entente Setif), Antar Yahia (VfL Bochum)

Miðjumenn:
Djamel Abdoun (Nantes), Lazhar Hadj Aissa (Entente Setif), Riad Boudebouz (Sochaux), Adlane Guedioura (Wolverhampton Wanderers), Fouad Kadir (Valenciennes), Medhi Lacen (Racing Santanader), Khaled Lemmouchia (Entente Setif), Yazid Mansouri (Lorient), Mourad Meghni (Lazio), Hassan Yebda (Portsmouth), Karim Ziani (VfL Wolfsburg)

Sóknarmenn:
Amri Chadli (Kaiserslautern, Germany), Rafik Djebbour (AEK Athens), Abdelkader Ghezzal (Siena), Karim Matmour (Borussia Moenchengladbach), Rafik Saifi (Istres)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner