Í dag eru 19 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Slóveníu.
Slóvenía verður í C-riðli:
C-Riðill
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
Slóvenía verður í C-riðli:
England
Bandaríkin
Alsír
Slóvenía
Þjálfari: Matjaž Kek
Sæti á FIFA listanum: 23
Leikjahæsti maður: Zlatko Zahovič – 81
Markahæsti maður: Zlatko Zahovič – 35
Stærsti sigur: 7-0 á móti Óman 1999
Versta tap: 5-0 á móti Frakklandi 2002
Það kom mjög mörgum á óvart þegar Slóvenía tryggði sér sæti á HM í sumar. Liðið var í erfiðum riðli, var ekki með marga þekkta leikmenn og lentu svo í erfiðu umspili, en þrátt fyrir allt það eru Slóvenía að taka þátt á HM í annað sinn.
Aðal styrkleikur Slóvena verður að teljast vera sterka vörnin þeirra. Liðið hleypti aðeins inn 4 mörkum í riðlinum í undankeppninni, sem er jafnmikið og Hollendingar, en þeir spiluðu einum leik færra.
Liðið er ekki með mikla dýpt og ef einhver meiðsli koma upp eru ekki margir sem geta komið í stað leikmanna eins og Rober Koren, Valter Birsa eða Milivoje Novakovic.
Saga:
Slóvenska liðið er frekar ungt, en liðið spilaði sinn fyrsta leik 1992, en var áður partur af Júgóslavíu.
Liðið hefur þó komist á HM áður, 2002, en þeim gekk ekki vel, og skoruðu aðeins 2 mörk og fengu enginn stig. Þjóðin komst einnig á EM árið 2000.
Gengi í undankeppninni:
Slóveníu gekk mjög vel í undankeppninni, en það áttu ekki margir von á miklu, en liðið var með Tékklandi, Póllandi og Slóvakíu í riðli. Þrátt fyrir það töpuðu þeir aðeins tvisvar, og gerðu 2 jafntefli, en sigruðu 6 leiki.
Liðið lenti í 2.sæti í riðlinum og þurfti þar með að fara í umspil um sæti á HM, og mættu þeir þá Rússlandi. Rússarnir unnu fyrri leikinn í Rússlandi, 2-1, en Zlatko Dedic skoraði eina mark seinni leiksins og Slóvenar þar með sigurvegarar á útimörkum.
Lykilmenn:
Milivoje Novakovic (Köln)
Robert Koren (West Brom)
Samir Handanovic (Udinese)
Castrol tölufræði:*
Líkur að Slóvenía vinni HM: 0.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Ástralía (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Þýskaland (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti:4.6%
2. sæti16.4%
3. sæti39.4%
4. sæti39.7%
„Við trúum því allir að okkur eigi eftir að ganga vel á Suður-Afríku. Við höfum náð markmiðunum okkar með því að komast á HM, en við erum ekki búnir enn.“ – Robert Koren
26 manna hópur
Markmenn:
Samir Handanovic (Udinese), Jasmin Handanovic (Mantova), Aleksander Seliga (Sparta Rotterdam)
Varnarmenn:
Bojan Jokic (Chievo), Marko Suler (Gent), Bostjan Cesar (Grenoble), Branko Ilic (FC Moscow), Matej Mavric (Koblenz), Dejan Kelhar (Cercle Brugge), Elvedin Dzinic (Maribor), Miso Brecko (Cologne), Suad Filekovic (Maribor)
Miðjumenn:
Andraz Kirm (Wisla Krakow), Andrej Komac (Maccabi Tel Aviv), Rene Krhin (Inter Milano), Mirnes Sisic (PAS Giannina), Darijan Matic (Rapid Bucharest), Dalibor Stevanovic (Vitesse), Robert Koren (West Bromwich Albion), Aleksander Radosavljevic (Larissa), Valter Birsa (Auxerre)
Sóknarmenn:
Milivoje Novakovic (Cologne), Zlatko Dedic (Bochum), Zlatan Ljubijankic (Gent), Nejc Pecnik (Nacional), Tim Matavz (Groningen)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.


