Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 24. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Ástralía
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 18 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Ástralíu.
Ástralía verður í D-riðli:
D-Riðill
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía

Þjálfari: Pim Verbeek
Sæti á FIFA listanum: 20
Leikjahæsti maður: Alex Tobin – 87
Markahæsti maður: Damian Mori – 29
Stærsti sigur: 31-0 á móti Bandaríksu Samóa 2001
Versta tap: 8-0 á móti Suður-Afríka 1955

Ástralía er landslið sem hefur vaxið mikið síðustu árin. Liðið hefur náð að takast á við stærstu lið í heimi, og þeir verðu í erfiðum riðli í sumar og þurfa að takast við erfið lið. Þeir eru þó vel undirbúnnir fyrir slag en þeir hleypti aðeins inn fjórum mörkum í undankeppninni, og verður sterk vörn að teljast vera einn helsti styrkur liðsins.

Liðið hefur einning spilað lengi saman, en þetta er næstum því sama liðið og komst á HM fyrir fjórum árum síðan. Þeir hafa lært að berja stig úr liðum sem verður góður hæfileiki á móti sterkum liðum í sumar.

Sóknarleikur liðisins er hinsvegar ekki jafn góður. Þótt að Tim Cahill sé öfluggt vopn, þá geta lið blokkerað hann og þannig stoppað allar sóknir Ástralana.

Þótt að Ástralarnir eru kannski ekki tilbúnnir að stíga næsta skrefið, þá gætu þeir strítt stóru liðinum.

Saga:

Ástralía komst fyrst á HM árið 1974 en liðið tapaði fyrir bæði Vestur- og Austur-Þýskalandi. Það var svo 32.ára bið eftir næsta móti, en það var árið 2006 þegar liðinu gekk betur, og komst úr riðlinum áður en Ítalía sló þá út í 16 liða úrslitum.

Ástralía vann Eyjaálfu keppnina 4.sinnum, og náð 2. og 3.sæti á Álfukeppninni: 1997 og 2001.

Gengi í undankeppninni:

Ástralíu gekk vel í undankeppninni, en liðið var að taka þátt í asísku undankeppninni í fyrsta sinn. Liðið þurfti að spila tvisvar í riðlastigi, en í fyrsta riðlinum mættu þeir Katar, Írak og Kína. Liðið vann riðilinn en tapaði samt tvisvar, einu sinnu heima á móti Kína og svo úti á móti Írak sem verður að teljast vonbrigði.

Í seinni riðlinum mætti liði Japan, Barein, Úsbekistan og Katar aftur. Þar flaug Ástralía í gegnum riðilinn, en þeir voru taplausir og gerðu aðeins tvö jafntefli í 8 leikjum.

Lykilmenn:

Tim Cahill (Everton)
Mark Schwarzer (Fulham)
Harry Kewell (Galatasaray)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Ástralía vinni HM: 1.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Bandaríkin (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• England (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti:19.9%
2. sæti28.2%
3. sæti28.7%
4. sæti23.2%






„Við getum farið í 16 liða úrslitin, og þegr maður er komið svo langt þá getur allt gerst. Þetta er erfiður riðill en leikmennirnir eru spenntir fyrir riðlinum, þeir sjá það sem áskorun.“ – Pim Verbeek

31. manna hópur

Markmenn:
Adam Federici (Reading), Eugene Galekovic (Adelaide United), Brad Jones (Middlesbrough), Mark Schwarzer (Fulham)

Varnarmenn:
Michael Beauchamp (Al-Jazira), David Carney (FC Twente) Scott Chipperfield (Basle), Shane Lowry (Aston Villa), Mark Milligan (JEF United), Craig Moore (unattached), Lucas Neill (Galatasaray), Jade North (Tromso)

Miðjumenn:
Luke Wilkshire (Dinamo Moscow), Rhys Williams (Middlesbrough), Mark Bresciano (Palermo), Tim Cahill (Everton), Nicky Carle (Crystal Palace), Jason Culina (Gold Coast United), Brett Emerton (Blackburn), Richard Garcia (Hull), Vince Grella (Blackburn), James Holland (AZ Alkmaar), Brett Holman (AZ Alkmaar), Mile Jedinak (Genclerbirligi), Tommy Oar (FC Utrecht), Carl Valeri (Sassuolo), Dario Vidosic (Nurnberg)

Sóknarmenn:
Josh Kennedy (Nagoya Grampus), Harry Kewell (Galatasaray), Scott McDonald (Middlesbrough), Nikita Rukavytsya (FC Twente)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner