Í dag eru 17 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Þjóðverja.
Þýskaland verður í D-riðli:
D-Riðill
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía
Þýskaland verður í D-riðli:
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía
Þjálfari: Joachim Löw
Sæti á FIFA listanum: 6
Leikjahæsti maður: Lothar Matthäus – 150
Markahæsti maður: Gerd Müller – 68
Stærsti sigur: 16-0 á móti Rússlandi 1912
Versta tap: 8-0 á móti Englandi 1909
Þýskaland er alltaf meðal sigurstranglegustu liðum á stórmótum. Þýski liðsandinn, eða 'Teamgeist', er þeirra helsti styrkur, og með sterka vörn er liðið oft óstöðvandi.
Joachim Löw, landsliðsþjálfari þjóðverja tók við liðinu eftir síðasta HM, og árangur hans
med þeim hefur verið mjög góður. Undir stjórn hans komust þjóðverjar í úrslit á EM í fyrra og voru ósigraðir í undankeppninni.
Aðal veikleiki þeirra nýlega er þó að þeim hefur ekki tekist að sigra hin stóru löndin, eins og Spán, Brasilíu og Ítalíu. Ef að þjóðverjar ætla að vinna sinn fyrsta HM titil í 20 ár þá þurfa þeir að vinna bestu liðin í heimi.
Það hafa líka verið mikið um meiðsli í þýska hópnum, en einn helsti leikmaður þýska liðsins síðustu ára, Michael Ballack, mun missa af mótinu í sumar og verða Þjóðverjar að finna leikmenn til að koma í stað fyrirliðans.
Saga:
Þjóðverjar hafa verið reglulegir gestir á HM í gegnum árin, en liðiðinu aðeins tvisvar mistekist að komast á HM: 1930 og 1950.
Þýskaland hefur náð góðum árangri á þessum mótum, en liðið hefur unnið HM þrisvar: 1954, 1974 og 1990, verið í 2.sæti fjóru sinnum, og í 3.sæti þrisvar.
Liðið hefur einning unnið EM þrisvar: 1972, 1980 og 1996, og lenti í þriðja sæti Álfukeppnarinnar 2005.
Gengi í undankeppninni:
Þýskaland var ekki í miklum erfiðleikum með undankeppnisriðil þeirra, en lið endaði í 1.sæti, 4.stigum á undan Rússlandi, og ósigrað, en liðið gerði samt 2 jafntefli við Finnland.
Lykilmenn:
Bastian Schweinsteiger (Bayern München)
Miroslav Klose (Bayern München)
Philipp Lahm (Bayern München)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Þýskaland vinni HM: 5.5%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Bandaríkin (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• England (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 48.4%
2. sæti 26.0%
3. sæti 16.0%
4. sæti 9.6%
„Þýska liðið geta unnið Brasilíu og Spánverja, og öfugt auðvitað. Það er ekkert víst í þessari keppni.“ – Oliver Kahn
25. manna hópur
Markmenn:
Hans-Jorg Butt (Bayern München), Manuel Neuer (Schalke), Tim Wiese (Werder Bremen)
Varnarmenn:
Per Mertesacker (Werder Bremen), Heiko Westermann (Schalke), Philipp Lahm (Bayern München), Jerome Boateng (HSV), Andrea Beck (Hoffenheim), Arne Friedrich (Hertha Berlin), Serdar Tasci (Stuttgart), Marcell Jansen (HSV), Holger Badstuber (Bayern München), Dennis Aogo (HSV)
Miðjumenn:
Sami Khedira (Stuttgart), Piotr Trochowski (HSV), Marko Marin (Werder Bremen), Bastian Schweinsteiger (Bayern München), Mesut Ozil (Werder Bremen), Toni Kroos (Bayern München)
Sóknarmenn:
Lukas Podolski (Köln), Miroslav Klose (Bayern München), Stefan Kiessling (Bayer Leverkusen), Cacau (Stuttgart), Thomas Muller (Bayern München), Mario Gomez (Bayern München)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.



