Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 26. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Gana
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 16 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Gana.
Gana verður í D-riðli:
D-Riðill
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía

Þjálfari: Milovan Rajevac
Sæti á FIFA listanum: 32
Leikjahæsti maður: Abédi Pelé – 73
Markahæsti maður: Abédi Pelé – 33
Stærsti sigur: 13-0 á móti Keníu 1965
Versta tap: 10-0 á móti Búlgaríu 1968

Gana komst upp úr riðlinum í sínu fyrst heimsmeistaramóti árið 2006. Í ár ætla þeir að reyna að endurtaka þennan frábæra árangur og jafnvel slá metið sem þeir settu í 2006 sem verður erfitt, enda er liðið í sterkum riðli.

Miðjan hjá Gana er þeirra helsti styrkur, en Gana spilar mikið í gegnum miðjuna og þar munu leikmenn eins og Sulley Muntari og Michael Essien (ef hann er ekki meiddur) vera aðal leikmenn Gana liðsins.

Liðinu vantar samt ‚alvöru‘ sóknarmann sem getur skapað færi og skorað mörk sjálfur, en miðjan hefur oft þurft að skora flest mörkin.

Saga:

Þetta verður í annað skiptið sem Gana verður á HM í sumar, en þeir voru fyrst á HM árið 2006 þegar þeir komu verulega á óvart og komust úr riðlinum þegar þeir sigruðu Tékkland og Bandaríkin.

Gana hefur sigrað Afríkukeppnina fjóru sinnum: 1963, 1965, 1978 og 1982 og fengu Olimpíubrons árið 1992.

Gengi í undankeppninni:

Liðið var fyrsta áfríska liðið sem að tryggði sér sæti á HM en þeir voru nokkuð öruggir í seinni riðlakeppninni og eftir 4 sigra í fyrstu 4 leikjunum voru þeir komnir á HM og hafa þar með getað undirbúið sig fyrir HM síðan í September í fyrra.

Gana voru samt nálægt því að detta úr keppninni í fyrri riðlakeppninni þegar þeir komust áfram á markatölu þar sem þeir töpuðu tvisvar á útivell á móti Gabon og Líbíu.

Lykilmenn:

Michael Essien (Chelsea)
Richard Kingson (Wigan Athletic)
Sulley Muntari (Inter)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Gana vinni HM: 0.2%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Bandaríkin (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• England (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 10.8%
2. sæti 19.0%
3. sæti 27.4%
4. sæti 42.8%






„Markmið okkar er að komast áfram úr riðlinum og svo halda áfram.“ – Milovan Rajevac

30 manna hópur

Markmenn:
Richard Kingson (Wigan), Daniel Agyei (Liberty Professionals), Stephen Ahorlu (Hearts of Lions), Stephen Adams (Aduana Stars)

Varnarmenn:
Samuel Inkoom (Basel), Eric Addo (Roda JC), Jonathan Mensah (Granada), Lee Addy (Bechem Chelsea), Rahim Ayew (Zamalek), Hans Sarpei (Bayer Leverkusen), John Mensah (Lyon), Isaac Vorsah (Hoffenheim), John Pantsil (Fulham)

Miðjumenn:
Sulley Muntari (Inter Milan), Derek Boateng (Getafe), Anthony Annan (Rosenborg), Emmanuel Agyemang-Badu (Udinese), Kwadwo Asamoah (Udinese), Andre Ayew (Marseille), Michael Essien (Chelsea), Stephen Appiah (Bologna), Haminu Draman (Lokomotiv Moscow), Quincy Owusu Abeyie (Al Sadd), Bernard Kumordzie (Panionios), Laryea Kingston (Hearts), Kevin-Prince Boateng (Portsmouth)

Sóknarmenn:
Matthew Amoah (NAC Breda), Asamoah Gyan (Rennes), Prince Tagoe (Hoffenheim), Dominic Adiyiah (AC Milan)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.wad
Slapp
banner
banner