Í dag eru 15 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Serbíu.
Serbía verður í D-riðli:
D-Riðill
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía
Serbía verður í D-riðli:
Ástralía
Þýskaland
Gana
Serbía
Þjálfari: Radomir Antić
Sæti á FIFA listanum: 16
Leikjahæsti maður: Savo Milošević – 102
Markahæsti maður: Savo Milošević – 37
Stærsti sigur: 6-1 á móti Búlgaríu 2007
Versta tap: 2-0 á móti Úkraínu 2008
Serbía er í sumar að spila sitt fyrsta stórmót sem sjálfstætt land. Liðið tryggði sér sæti á HM með því að sigra erfiðan riðil, og eru því væntingarnar í Serbíu miklar.
Helstu styrkleikar serbneska liðsins er sterk vörn og sókndarfir kantmenn. Með menn eins og Nemanja Vidic og Branislav Ivanovic er vörnin klettur sem serbar geta treyst á, á meðan Milos Krasic og Milan Jovanovic hafa sýnt frábæra takta með Serbíu og félagsliðum þeirra á kantinum.
Sóknin hefur þó stundum valdið þeim vandræðum en nýji sóknarmaður Birmingham, Nikola Zigic, hverfur oft í leikjum, og Marko Pantelic á það til að leggja upp fleiri mörk en hann skorar.
Radomir Antic, sem þjálfaði Real Madrid og Barcelona á sínum tíma, mun vona að liðið haldi áfram góða spilinu sem þeir sýndu í undankeppninni og forðast niðulæginguna sem liðið var fyrir á síðasta HM þegar þeir fengu 0 stig og fengu á sig 10 mörk.
Saga:
Liðið er semsagt að taka þátt í sínu fyrsta HM sem Serbía, en liðið keppti á HM sem Júgóslavía 9 sinnum og sem Serbía og Svartfjallaland einu sinni. Besti árangur þeirra var 1930 og 1962 þegar liðið endaði í 4.sæti.
Serbía komst tvisvar í úrslit EM: 1960 og 1968, og fékk gull í Ólimpíuleikinum árið 1960.
Gengi í undankeppninni:
Serbía kom mörgum á óvart þegar þeir unnu riðilinn sinn í undankeppninni, 1.stigi á undan Frakklandi. Liðið tapaði aðeins tveimur leikjum, útilekirnir á móti Frakklandi og Litháen.
Serbía skoraði 22 mörk í riðlinum, eða 2.2 mörk í leik, og hleypti aðeins 8 mörkum inn.
Lykilmenn:
Miloš Krasić (CSKA Moskva)
Dejan Stanković (Inter)
Nemanja Vidić (Manchester United)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Serbía vinni HM: 1.1%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Bandaríkin (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• England (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 20.9%
2. sæti 26.8%
3. sæti 27.4%
4. sæti 24.4%
Líkur að Serbía fari áfram úr riðlinum: 47.8%
„Þetta er frábær tími í serbneskum fótbolta. Við erum að spila frábæran bolta og náum í góð úrslit. Það er mikilvægt að halda þessu áfram og fara á HM með mikið sjálfstraust.“ – Miloš Krasić
24. manna hópur
Markmenn:
Vladimir Stojkovic (Wigan), Zeljko Brkic (Vojvodina), Bojan Isailovic (Zaglebie Lubin), Andjelko Djuricic (Leiria)
Varnarmenn:
Branislav Ivanovic (Chelsea), Antonio Rukavina (1860 Munich), Nemanja Vidic (Manchester United), Neven Subotic (Borussia Dortmund), Aleksandar Lukovic (Udinese), Ivan Obradovic (Real Zaragoza), Aleksandar Kolarov (Lazio)
Miðjumenn:
Dejan Stankovic (Inter Milan), Gojko Kacar (Hertha Berlin), Nenad Milijas (Wolves), Zdravko Kuzmanovic (Stuttgart), Radosav Petrovic (Partizan Belgrade), Milos Krasic (CSKA Moscow), Zoran Tosic (Manchester United), Milos Ninkovic (Dynamo Kiev), Milan Jovanovic (Standard Liege)
Sóknarmenn:
Nikola Zigic (Valencia), Marko Pantelic (Ajax), Danko Lazovic (Zenit St Petersburg), Dragan Mrdja (Vojvodina)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
