Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 28. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol Predictor 
Liðin á HM: Kamerún
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 14 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Kamerún.
Kamerún verður í E-riðli:
E-Riðill
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland

Þjálfari: Paul Le Guen
Sæti á FIFA listanum: 19
Leikjahæsti maður: Rigoberto Song – 133
Markahæsti maður: Samuel Eto‘o – 44
Stærsti sigur: 9-2 á móti Djíbútí 1960
Versta tap: 6-1 á móti Rússlandi 1994

Kamerún snýr aftur á HM eftir að hafa mistekist að komast á HM 2006. Þessi kynslóð Kamerún manna er talinn vera sú besta í langan tíma, og með menn eins og Samuel Eto‘o í toppformi, eru stuðningsmenn Kamerún að vonast eftir því að liðið standi loks undir væntingum.

Þótt að Samuel Eto‘o sé einn af lykilmönnum liðsins, er miðjan hjá Kamerún mikilvægri en sóknin. Þótt að miðjan þeirra sé ekki jafn stjörnuhlaðin og hjá öðrum afrískum liðum, þá eru þeir mjög góðir að tengja vörn og sókn.

Aðal veikleki liðsins er að flestir leikmenn liðsisn eru lykilmenn í félagsliðum þeirra. Þetta gerir það að verkum að leikmennirnir þreytast gjarnan því flestir af þeim hafa spilað flesti leiki með liðunum sínum.

Saga:

Þetta verður í 6.sinn sem að Kamerún tekur þátt í HM. Liðið tryggði sér fyrst sæti á HM árið 1982. Það má til gamans geta að í þeirri keppni gerði Kamerún 3 jafntefli, skoruðu 1 mark og fengu á sig 1 mark.

Kamerún hefur unnið Afríkukeppnina 4 sinnum, fengið eitt Ólimpíu gull: 2000, og náði öðru sæti í Álfukeppninni árið 2003.

Gengi í undankeppninni:
Kamerún byrjaði ekki vel í undankeppninni, en liðið náði aðeins í 1 stig úr fyrstu 2. leikjum sínum á móti Tógó og Marokkó.

Eftir það breytist gengi liðsins en þeir ráku Otto Pfister og réðu Paul Le Guen, fyrrum þjálfari PSG og Rangers. Kamerún vann svo síðustu 4 leikina og tryggði sér þar með sæti á HM í sumar.

Lykilmenn:

Samuel Eto’o (Inter)
Idriss Carlos Kameni (Espanyol)
Alex Song (Arsenal)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Kamerún vinni HM: 0.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Paragvæ (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Ítalía (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 11.1%
2. sæti 21.1%
3. sæti 29.2%
4. sæti 38.6%




Líkur að Kamerún fari áfram úr riðlinum: 32.2%


„Við höfum nokkra góða leikmenn, góðan liðsanda, og við erum mikið betri eftir að ég tók við stjórn í fyrra.“ – Paul Le Guen

30 manna hópur

Markmenn:
Hamidou Souleymanou (Kayserispor), Carlos Kameni (Espanyol), Guy Roland Ndy Assembe (Valenciennes), Amour Patrick Tignyemb (Bloemfontein Celtic)

Varnarmenn:
Jean Patrick Abouna Ndzana (Astres de Douala), Benoit Assou-Ekotto, Sebastien Bassong (both Tottenham), Gaetan Bong (Valenciennes), Aurelien Chedjou (Lille), Geremi Njitap (Ankaragucu), Stephane Mbia (Marseille), Makadji Boukar (Al Nahdha), Nicolas Nkoulou (Monaco), Rigobert Song (Trabzonspor)

Miðjumenn:
Marcel Ndjeng (Augsburg), Eyong Enoh (Ajax), Jean II Makoun (Lyon), Georges Mandjeck (Kaiserslautern), Joel Matip (Schalke), Patrick Mevoungou (Canon Sportif de Yaounde), Landry Nguemo (Celtic), Alexandre Song (Arsenal)

Sóknarmenn:
Vincent Aboubakar (Coton Sport), Eric Choupo-Moting (Nuremberg), Achille Emana (Betis), Samuel Eto'o (Inter Milan), Mohamadou Idrissou (Freiburg), Dorge Kouemaha (Club Brugge), Achille Webo (Mallorca), Jacques Zoua

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner
banner