Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 29. maí 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Skysports | Castrol predictor 
Liðin á HM: Danmörk
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 13 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Dana.
Danmörk verður í E-riðli:
E-Riðill
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland

Þjálfari: Morten Olsen
Sæti á FIFA listanum: 35
Leikjahæsti maður: Peter Schmeichel – 129
Markahæsti maður: Poul Nielsen – 52
Stærsti sigur: 17-1 á móti Frakklandi 1908
Versta tap: 8-0 á móti Þýskalandi 1937

Danir eru mættir aftur á heimssviðið eftir að hafa mistekist að komast á HM 2006. Fyrir marga leikmenn í hópnum verður þetta síðasti séns að gera stóra hluti á HM. Þetta gæti einnig verið síðustu leikirnir sem Morten Olsen verður við stjórnvölin hjá Danmörku en hann hefur þjálfað þá í 10 ár.

Einn aðal styrkur danska liðsins er miðjan þeirra. Með tvo sterka varnarsinnaða miðjumenn er oft erfitt fyrir hin liðin að komast nálægt teignum. Miðjan styrkir svo líka sóknarleik liðsins en Jakob Poulsen skoraði nokkur mikilvæg mörk í undankeppninni og verður hættulegur í sumar.

Sóknin hjá Danmörku er afturámóti veikleiki liðsins. Olsen stillir oft upp liðinu í 4-4-1-1 þar sem Bendtner er einn í sókninni með Tomasson fyrir aftan sig.

Það er samt ekki alltaf hægt að treysta á þessa sókn þar sem Bendtner er oft meiddur, Tomasson er ‚fastur‘ á 51.mörkum, einu marki frá markameti dana, og Søren Larsen hefur ekki spilað marga leiki, og skorar helst á móti litlum liðum.

Saga:

Þetta verður í 4.skiptið sem að Danir taka þátt á HM, en þeir komust einning á HM árin: 1986, 1998 og 2002. Besti árangur þeirra var 1998 þegar þeir komust í 8-liða úrslit og töpuðu naumlega fyrir Brasilíu.

Danmörk unnu EM árið 1992 eins og mörgum er kunnugt, og þeir hafa einnig unnið Álfukeppnina, sem þeir gerðu 1995.

Gengi í undankeppninni:

Dönum gekk mjög vel í undankeppninni, en liðið endaði í fyrsta sæti í riðlinum á undan Portúgal og Svíþjóð. Liðið tapaði aðeins einu sinni, en það var í síðasta leik riðilsins þegar þeir voru búnir að tryggja sér fyrsta sætið.

Lykilmenn:

Nicklas Bendtner (Arsenal)
Thomas Sørensen (Stoke City)
Jakob Poulsen (AGF Aarhus)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Danmörk vinni HM: 1.5%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Ástralía (16 liða úrslit)
• Frakkland (8 liða úrslit)
• Brasilía (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Þýskaland (16 liða úrslit)
• Argentína (8 liða úrslit)
• Spánn (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 20.4%
2. sæti 29.4%
3. sæti 27.3%
4. sæti 23.3%




Líkur að Danmörk fari áfram úr riðlinum: 49.5%


„Danmörk eru ekki sigurstranglesta liðið, en ef við höfum bestu leikmennina okkar, sem gerðist ekki í undankeppninni, þá getum við gert góða hluti." – Morten Olsen

23. manna hópur

Markmenn:
Thomas Sørensen (Stoke City), Stephan Andersen (Brøndby), Jesper Christiansen (FC København)

Varnarmenn:
William Kvist (FC København), Simon Kjær (Palermo), Lars Jacobsen (Blackburn), Per Krøldrup (Fiorentina), Daniel Agger (Liverpool), Patrick Mtiliga (Malaga), Simon Poulsen (AZ Alkmaar)

Miðjumenn:
Martin Jørgensen (AGF Aarhus), Christian Poulsen (Juventus), Jakob Poulsen (AGF Aarhus), Dennis Rommedahl (Ajax), Thomas Kahlenberg (Wolfsburg), Thomas Enevoldsen (FC Groningen), Christian Eriksen (Ajax), Mikkel Beckmann (Randers), Daniel Jensen (Werder Bremen), Jesper Grønkjær (FC København)

Sóknarmenn:
Jon Dahl Tomasson (Feyenoord), Søren Larsen (MSV Duisburg), Nicklas Bendtner (Arsenal)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner