Í dag eru 12 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Japan.
Japan verður í E-riðli:
E-Riðill
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland
Japan verður í E-riðli:
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland
Þjálfari: Takeshi Okada
Sæti á FIFA listanum: 45
Leikjahæsti maður: Masami Ihara – 122
Markahæsti maður: Kunishige Kamamoto– 75
Stærsti sigur: 15-0 á móti Filipseyjum 1967
Versta tap: 15-2 á móti Filipseyjum 1917
Japanska liðið er að fara að keppa í sínu fjórða HM í röð, en það verður að teljast frábær árangur fyrir lið sem náði aldrei að komast á HM fyrr en 1998. Japanir ætla samt, þrátt fyrir frekar dapran árangur á HM, að komast í undanúrslitin í sumar, en það gæti orðið þeim erfitt. Þeir þurfa fyrst að komast áfram úr sterkum riðli.
Aðal styrkleiki liðsins hefur alltaf verið miðjan þeirra og það verður ekki neitt öðruvísi í sumar. Leikmenn á borð við Nakamura og Inamoto verða mjög mikilvægir fyrir Japan í sumar.
Sóknin þeirra er ekki jafn góð, en þar er þó að finna Keisuke Honda, nýjasta stjarna Japan. Japan eiga samt erfitt með að spila á móti líkamlega sterkum liðum, og munu þurfa að bæta það ef þeir ætla að gera eitthvað í sumar.
Saga:
Japan eru að taka þátt í sínu fjórða HM í sumar, en liðið hefur komist á öll HM síðan 1998. Besti árangur þeirra kom árið 2002 þegar Japan komst í 16-liða úrslit.
Japan hefur unnið Asíukeppnina þrisvar: 1992, 2000 og 2004; var í öðru sæti í Álfukeppninni árið 2001 og fékk Ólimpíu brons 1968.
Gengi í undankeppninni:
Japan átti í litlum vandræðum með að komast úr fyrsta riðlinum í undankeppninni, en þar var liðið í fyrsta sæti, á undan Barein, Óman og Tælandi.
Þeim gekk aðeins verr í seinni riðlinum, en þar voru þeir í öðru sæti, á eftir Ástralíu, en liðið tapaði á móti Áströlum og gerði 3 jafntefli á heimavelli.
Lykilmenn:
Shunsuke Nakamura (Yokohama Marinos)
Yuji Nakazawa (Yokohama Marinos)
Keisuke Honda (CSKA Moscow)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Japan vinni HM: 0.7%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Paragvæ (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Ítalía (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti: 14.1%
2. sæti 24.3%
3. sæti 30.1%
4. sæti 31.5%
Líkur að Japan fari áfram úr riðlinum: 38.4%
„Mér finnst gott að reyna að komast í úrslitin, og ekki sætta sig við undanúrslitin." – Keisuke Honda
23. manna hópur
Markmenn:
Seigo Narazaki (Nagoya Grampus), Eiji Kawashima (Kawasaki Frontale), Yoshikatsu Kawaguchi (Jubilo Iwata)
Varnarmenn:
Yuji Nakazawa (Yokohama F-Marinos), Tulio (Nagoya Grampus), Yasuyuki Konno (FC Tokyo), Daiki Iwamasa (Kashima Antlers), Yuichi Komano (Jubilo Iwata), Yuto Nagatomo (FC Tokyo), Atsuto Uchida (Kashima Antlers)
Miðjumenn:
Shunsuke Nakamura (Yokohama F-Marinos), Yasuhito Endo (Gamba Osaka), Kengo Nakamura (Kawasaki Frontale), Junichi Inamoto (Kawasaki Frontale), Yuki Abe (Urawa Reds), Makoto Hasebe (VfL Wolfsburg), Keisuke Honda (CSKA Moscow), Daisuke Matsui (Grenoble)
Sóknarmenn:
Shinji Okazaki (Shimizu S-Pulse), Keiji Tamada (Nagoya Grampus), Yoshito Okubo (Vissel Kobe), Takayuki Morimoto (Catania), Kisho Yano (Albirex Niigata)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




