Í dag eru 11 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Hollands.
Holland verður í E-riðli:
E-Riðill
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland
Holland verður í E-riðli:
Kamerún
Danmörk
Japan
Holland
Þjálfari: Bert van Marwijk
Sæti á FIFA listanum: 3
Leikjahæsti maður: Edwin van der Saar – 130
Markahæsti maður: Patrick Kluivert – 40
Stærsti sigur: 9-0 á móti Noregi 1972
Versta tap: 12-2 á móti Englandi 1907
Hollendingar eru aftir mættir á HM í sumar, en þetta verður í níunda skiptið sem landið tekur þátt í þessu alþjóðlega stórmóti. Eftir að hafa byrjað síðasta EM mjög vel, og eftir góða undankeppni, eru margir stuðningsmenn farnir að vona að hollendingar nái að taka næsta skrefið í sumar og vinni HM.
Aðal styrkleikur Hollands er sóknin þeirra. En sóknin þeirra er ekki aðeins sóknarmaðurinn, heldur eru líka 3 mjög sóknarsinnaðir miðjumenn honum til stuðnings. Í sumar er verið að tala um Robben, Sneijder, van Persie og Kuyt, og það er sóknarlína sem flest lið væru stolt af að hafa.
Robben er nýbúinn að hafa frábært ár í Þýskalandi með Bayern, og Sneijder var einn af lykilmönnum Inter manna er þeir tryggðu sér þrennuna.
Því miður fyrir hollendinga er vörnin ekki í sama klassa og sóknin, og það hefur oft kostað þeim dýrmæta leiki. Það hefur verið bent á aldur Mathijsen og van Bronckhorst, og að þeir standa sig ekki alltaf í stóru leikjunum, en það er eitthvað sem van Marwijk þarf að hugsa um fyrir HM.
Saga:
Hollendingar hafa núna komist á HM 9 sinnum, en þeim hefur aldrei tekist að vinna það, en þeir töpuðu í úrslitinum árin 1974 og 1978.
Holland hefur þó unnið EM, en það var 1988, og þeir hafa fengið 3 ólimpíu brons: 1908, 1912 og 1920.
Gengi í undankeppninni:
Hollenska undankeppnin var fullkomin. Liðið var, eins og margir hér á landi muna, í riðli með Noregi, Skotlandi, Makedóníu og Íslandi, en Holland sigraði alla 8 leikina sína og fékk aðeins á sig 2 mörk, en það má til gamans get að Kristján Örn Sigurðsson skoraði eitt af þeim.
Lykilmenn:
Robin van Persie (Arsenal)
Wesley Sneijder (Inter)
Arjen Robben (Bayern München)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Holland vinni HM: 10.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Paragvæ (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Ítalía (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
1. sæti: 54.4%
2. sæti 25.5%
3. sæti 13.4%
4. sæti 6.6%
Líkur að Holland fari áfram úr riðlinum: 79.9%
”Ég vona að ég verði lykilmaður í liðinu, en við höfum allir sama markmiðið: við viljum vinna HM.“ – Wesley Sneijder
23. manna hópur
Markmenn:
Sander Boschker (FC Twente), Maarten Stekelenburg (Ajax), Michel Vorm (FC Utrecht)
Varnarmenn:
Khalid Boulahrouz (Stuttgart), Edson Braafheid (Celtic), John Heitinga (Everton), Joris Mathijsen (Hamburg), Andre Ooijer (PSV Eindhoven), Giovanni van Bronckhorst (Feyenoord), Gregory van der Wiel (Ajax)
Miðjumenn:
Ibrahim Afellay (PSV Eindhoven), Nigel de Jong (Manchester City), Demy de Zeeuw (Ajax), Stijn Schaars (AZ Alkmaar), Wesley Sneijder (Inter Milan), Mark van Bommel (Bayern Munich), Rafael van der Vaart (Real Madrid)
Sóknarmenn:
Ryan Babel (Liverpool), Eljero Elia (Hamburg), Klaas Jan Huntelaar (AC Milan), Dirk Kuyt (Liverpool), Arjen Robben (Bayern Munich), Robin van Persie (Arsenal)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




