Í dag eru 10 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Ítalíu.
Ítalía verður í F-riðli:
F-Riðill
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Ítalía verður í F-riðli:
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Þjálfari: Marcello Lippi
Sæti á FIFA listanum: 5
Leikjahæsti maður: Fabio Cannovaro – 132
Markahæsti maður: Luigi Riva – 35
Stærsti sigur: 9-0 á móti Bandaríkjunum 1948
Versta tap: 7-1 á móti Ungverjalandi 1924
Núverandi heimsmeistarnir tryggðu sér sæti á HM nokkuð örugglega, en það eru samt ekki margir sem halda að þeir geta endurtekið frábæra árangur þeirra fyrir fjórum árum. Allt lægra en 4.sæti í keppninni verður samt vonbrigði fyrir Ítalíu. Liðið er næstum því óbreytt frá síðastra móti en liðið er samt orðið frekar aldrað.
Lippi treystir mikið á liðsheildina, og vill ekki fá of marga nýja menn inn sem gæti eyðilagt hana, og þess vegna hefur hann ákveðið að skilja Cassano og Totti eftir heima, þrátt fyrir að hafa gott tímabil.
Vörnin hjá ítölunum er heimsfræg, en hún er einn mikilvægasti parturinn í liðinu. Juventus tríóið Buffon, Cannavaro og Chiellini áttu ekki gott tímabil með Juve í ár, svo spennandi verður að sjá hvort þeir geta haldið þétta vörn í landsliðinu.
Sóknin hjá Ítalía vantar heimsklassa sóknarmann, sem gæti orðið mikill veikleiki fyrir liðið seinni í keppninni. Gilardino, Di Natale og Iaquinta verða að sjá liðinu fyrir mörkum, en þeir verða seint taldir heimsklassa sóknarmenn.
Saga:
Ítalía eru næst sigursælasta landslið í heimi á eftir Brasilíu, en Ítalía hefur unnið HM 4 sinnum: 1934, 1938, 1982 og 2006, og eru þar með ríkjandi heimsmeistarar.
Ítalía aðeins unnið EM einu sinni, það var árið 1968, og þeir fengu gull á Ólimpíuleikunum árið 1936.
Gengi í undankeppninni:
Ítalía voru alltaf nokkuð öruggur í undankeppninni, en þeir tryggði sér sæti á HM með leik til góða. Liðið tapaði ekki leik og fékk aðeins á sig 7 mörk.
Á móti kemur að liðið spilaði aldrei flottan fótbolta, og skoraði aldrei fleiri en 3 mörk í leik, og í fyrir heimsmeistara í riðli með Kýpur og Georgíu, verður það að teljast dapurt.
Lykilmenn:
Gianluigi Buffon (Juventus)
Giorgio Chiellini (Juventus)
Andrea Pirlo (AC Milan)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Ítalía vinni HM: 3.7%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Danmörk (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Holland (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 52.7%
2. sæti 31.7%
3. sæti 13.8%
4. sæti 1.8%
Líkur að Ítalía fari áfram úr riðlinum: 84.4%
”Fyrir HM hverfa allir verkir, af því að þetta er svo frábær keppni til að spila í svo öll þreyta hverfur.“ – Andrea Pirlo
28. manna hópur**
Markmenn:
Gianluigi Buffon (Juventus), Morgan De Sanctis (Napoli), Federico Marchetti (Cagliari), Salvatore Sirigu (Palermo)
Varnarmenn:
Gianluca Zambrotta (Milan), Fabio Cannavaro (Juventus), Giorgio Chiellini (Juventus), Christian Maggio (Napoli), Leonardo Bonucci (Bari), Domenico Criscito (Genoa), Mattia Cassani (Palermo), Salvatore Bocchetti (Genoa)
Miðjumenn:
Andrea Pirlo (Milan), Gennaro Gattuso (Milan), Daniele De Rossi (Roma), Riccardo Montolivo (Fiorentina), Mauro Camoranesi (Juventus), Angelo Palombo (Sampdoria), Andrea Cossu (Cagliari), Claudio Marchisio (Juventus), Simone Pepe (Udinese)
Sóknarmenn:
Fabio Quagliarella (Napoli), Giuseppe Rossi (Villarreal), Vincenzo Iaquinta (Juventus), Antonio Di Natale (Udinese), Marco Borriello (Milan), Alberto Gilardino (Fiorentina), Giampaolo Pazzini (Sampdoria)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
**23. manna hópur ítala verður tilkynntur seinna í dag, en margir búast við því að Salvatore Sirigu, Salvatore Bocchetti, Fabio Quagliarella, Giuseppe Rossi og Andrea Cossu verða þeir sem missa sæti sitt í hópnum




