Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 02. júní 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol 
Liðin á HM: Nýja-Sjáland
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru 9 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Nýja-Sjálands.
Nýja-Sjáland verður í F-riðli:
F-Riðill
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía

Þjálfari: Ricki Herbert
Sæti á FIFA listanum: 78
Leikjahæsti maður: Ivan Vicelich – 66
Markahæsti maður: Vaughan Coveny – 28
Stærsti sigur: 9-0 á móti Fídjieyjar 1981
Versta tap: 10-0 á móti Ástralíu 1936

Nýja-Sjáland eru mættir aftur á heimssvið fótboltans eftir 28 ára fjarveru. Liðinu er ekki spáð góðu gengi, og flestir spá liðinu döpru gengi í sumar, en eftir 1-0 sigur nýlega á Serbum er trúin kominn í stuðningsmenn þeirra hvítu og spennandi verður að sjá hvernig þeim gengur.

Þetta er stórt og sterkt lið, en meðal hæð leikmanna er rétt undir 185 cm, svo þeir verða hættulegir í föstum leikatriðum og munu væntanlega reyna að gera sem mest úr því.

Það er samt ekki hægt að neita þeirri staðreynd að Nýja-Sjáland spila ekki oft í stórmótum, og í riðli með Ítalía og Paragvæ gæti þessi reynsla orðið of mikil fyrir þá. Liðið er heldur ekki mjög teknískt og ef að einn af lykilmönnum liðsins meiðist gæti þetta orðið næstum því ómögulegt fyrir liðið.

Saga:

Þetta er í annað sinn sem Nýja-Sjáland verður á HM, en þeir voru fyrst í keppninni árið 1982. Liðinu hefur ekki tekist að fá stig á HM, en þeir náðu að skora 2 mörk, bæði á móti Skotlandi.

Liðið hefur unnið Eyjaálfukeppnina 4 sinnum: 1973, 1998, 2002 og 2008.

Gengi í undankeppninni:

Nýja-Sjáland átti næstum því fullkomna undankeppni, en liðið tapaði aðeins einum leik í riðlinum sínum, en það var heima leikur á móti Fídjieyjum. Liðið skoraði 14 mörk en fékk aðeins á sig 5.

Lykilmenn:

Ryan Nelsen (Blackburn Rovers)
Chris Killen (Middlesbrough)
Leo Bertos (Wellington Phoenix)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Nýja-Sjáland vinni HM: 0.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Danmörk (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Holland (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 0.4%
2. sæti 2.0%
3. sæti 11.4%
4. sæti 86.2%





Líkur að Nýja-Sjáland fari áfram úr riðlinum: 2.4%

“Þetta er lang besta liðið sem ég hef verið í. Við erum með góða blöndu í liðinu núna og með meiri dýpt.” – Ryan Nelsen

23. manna hópur

Markmenn:
Mark Paston (Wellington Phoenix), Glen Moss (Melbourne Victory), James Bannatyne (Team Wellington)

Varnarmenn:
Ryan Nelsen (Blackburn Rovers), Ivan Vicelich (Auckland City), Ben Sigmund (Wellington Phoenix), Winston Reid (FC Midtjylland), Tommy Smith (Ipswich Town), Tony Lochhead (Wellington Phoenix), Andy Boyens (New York Red Bulls)

Miðjumenn:
Simon Elliott (unattached), Tim Brown (Wellington Phoenix), Leo Bertos (Wellington Phoenix), Michael McGlinchey (Motherwell), Aaron Clapham (Canterbury United), David Mulligan (unattached), Jeremy Brockie (Newcastle Jets), Andy Barron (Team Wellington), Jeremy Christie (FC Tampa Bay)

Sóknarmenn:
Chris Killen (Middlesbrough), Shane Smeltz (Gold Coast United), Chris Wood (West Bromwich Albion), Rory Fallon (Plymouth Argyle)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner