Í dag eru 8 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Paragvæ.
Paragvæ verður í F-riðli:
F-Riðill
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Paragvæ verður í F-riðli:
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Þjálfari: Gerardo Martino
Sæti á FIFA listanum: 31
Leikjahæsti maður: Carlos Gamarra – 110
Markahæsti maður: Jose Cardozo – 25
Stærsti sigur: 7-0 á móti Bólivíu 1949
Versta tap: 8-0 á móti Argentínu 1926
Paragvæ tekur þátt á HM í fjórða sinn í röð, en liðið vill nú komast lengra en því hefur tekist hingað til, en liðið virðist vera fast í 16-liða úrslitinum. Eftir góða undankeppni er mikil trú í Paragvæska liðinu að þeir geti komist lengra en það og gott betur.
Ef þeir ætla að gera það þarf vörnin þeirra að standa sig. Paragvæska vörnin hefur alltaf verið þeirra helsti styrkleikur, og eftir að hafa verið með næst bestu vörnina í undankeppninni, á eftir Brasilíu, er að augljóst að það verður mikilvægur partur í leik liðsins.
Einn helsti veikleiki Paragvæ er að þeir eru ekki lið sem hefur mikið af boltanum. Þeirra leikstíll er að verjast og svo að stunda skyndisóknir. Þetta á eftir að setja mikla pressu á vörnina á móti liðum sem vilja helst halda boltanum, eins og Spánn.
Saga:
Paragvæ hefur nú tryggt sér sæti á HM átta sinnum. Besti árangur liðsins í keppninni er samt bara 16-liða úrslit, sem þeim tókst að gera þrisvar: 1986, 1998 og 2002.
Liðið hefur unnið Suður Ameríkukeppnina tvisvar: 1953 og 1979, og þeir fengur Ólimpíu silfur árið 2004.
Gengi í undankeppninni:
Liðið byrjaði frábærlega í undankeppninni, en þeir fengu 13 stig úr fyrstu 5 leikjunum. Paragvæ endaði í 3.sæti, aðeins 1 stigi á eftir Brasilíu, sem voru í því fyrsta.
Paragvæ var með næst bestu vörnina í undankeppninni, en þeir hleyptu aðeins inn 16 mörkum, en þeir skoruðu aðeins 24 sinnum.
Lykilmenn:
Nelson Haedo Valdez (Borussia Dortmund)
Cristian Riveros (Sunderland)
Roque Santa Cruz (Manchester City)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Paragvæ vinni HM: 1.6%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Danmörk (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Holland (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 33.9%
2. sæti 40.1%
3. sæti 23.2%
4. sæti 2.8%
Líkur að Paragvæ fari áfram úr riðlinum: 74.0%
“Það eru miklar væntingar fyrir þetta HM. Við byrjum mjög vel í undankeppninni svo stuðningsmenn okkar eru bjartsýnar að við getum komið á óvart í sumar.” – Nelso Haedo Valdez
23. manna hópur
Markmenn:
Justo Villar (Real Valladolid), Aldo Bobadilla (Independiente Medellin), Diego Barreto (Cerro Porteno)
Varnarmenn:
Denis Caniza (Leon), Dario Veron (Pumas), Julio Caceres (Atletico Mineiro), Paulo Da Silva (Sunderland), Claudio Morel Rodriguez (Boca Juniors), Antolin Alcaraz (Wigan), Carlos Bonet (Olimpia), Aureliano Torres (San Lorenzo)
Miðjumenn:
Cristian Riveros (Sunderland), Enrique Vera (LDU Quito), Edgar Barreto (Atalanta), Jonathan Santana (Wolfsburg), Victor Caceres (Libertad), Nestor Ortigoza (Argentinos Juniors)
Sóknarmenn:
Roque Santa Cruz (Manchester City), Nelson Haedo Valdez (Borussia Dortmund), Oscar Cardozo (Benfica), Edgar Benitez (Pachuca), Lucas Barrios (Borussia Dortmund), Rodolfo Gamarra (Libertad)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.


