Í dag eru 7 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Slóvakíu.
Slóvakía verður í F-riðli:
F-Riðill
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Slóvakía verður í F-riðli:
Ítalía
Nýja-Sjáland
Paragvæ
Slóvakía
Þjálfari: Vladmír Weiss
Sæti á FIFA listanum: 34
Leikjahæsti maður: Miroslav Karhan – 96
Markahæsti maður: Szilárd Németh – 22
Stærsti sigur: 7-0 á móti San Marínó 2007
Versta tap: 6-0 á móti Argentínu 1995
Þjálfari Slóvakíu, Vladimír Weiss, sem kemur frá þekktri fótbolta fjöldskyldu í Slóvakíu og sem spilaði á HM 1990 með Tékkóslóvakíu, hefur gert frábæra hluti með liðið. Slóvakía mun taka þátt í sínu fyrsta HM í sumar, og mikil tilhlökkun er meðal stuðningsmanna og leikmanna. Liðið stóð sig mjög vel í undankeppninni, en liðið var á undan Tékklandi og Slóveníu.
Flestir leikmenn liðsins spila í liðum fyrir utan Slóvakíu sem verður stór plús fyrir slóvakana. Með menn eins og Martin Skrtel, Marek Hamsik, Jan Durica og Robert Vittek eru þeir góða reynslu af evrópskum fótbolta í liðinu.
Einn helsti veikleiki liðsins er að ef einn af lykilmönnum meiðist eða fer í bann verður það mjög erfitt fyrir Weiss að fylla skarðið. Liðið treystir of mikið á lykilmennina og þurfa að passa upp á þá ef þeir ætla langt í sumar.
Saga:
Þetta er fyrsta stórmót Slóvakíu sem sjálfstætt land. Slóvakía var áður partur af Tékkóslóvakíu, sem komst átta sinnum á HM, og náði til dæmis 2.sæti 1962, þar sem það voru 6 Slóvakar í liðinu.
Síðast þegar Tékkóslóvakía keppti á HM var 1990, en árið 1993 varð Slóvakía sjálfstætt land.
Gengi í undankeppninni:
Slóvakar komu flestum á óvart er þeir gerður sér lítið fyrir og unnu riðilinn sinn í undankeppninni. Mikilvægustu leikir slóvaka voru snemma í riðlinum þegar liðið vann Tékkland og Pólland.
Slóvakía skoraði fleiri mörk í riðlinum en hin liðin, eða 22 mörk, en liðið fékk hinsvegar á sig heil 10 mörk, sem er meira en Slóvenía, Tékkland og Norður-Írar fengu á sig.
Lykilmenn:
Martin Skrtel (Liverpool)
Marek Hamsik (Napoli)
Miroslav Stock (Chelsea)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Slóvakía vinni HM: 0.1%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Danmörk (16 liða úrslit)
• Spánn (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Holland (16 liða úrslit)
• Brasilía (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 12.8%
2. sæti 26.0%
3. sæti 51.4%
4. sæti 9.8%
Líkur að Slóvakía fari áfram úr riðlinum: 38.8%
“Við höfum engu að tapa í Suður-Afríku, og það er enginn pressa. Af hverju getum við ekki alveg eins farið þangað og pirrað nokkur lið?” – Peter Pekarik
23. manna hópur
Markmenn:
Jan Mucha (Legia Warsaw), Dusan Kuciak (Vaslui), Dusan Pernis (Dundee United)
Varnarmenn:
Peter Pekarik (Wolfsburg), Martin Petras (Cesena), Martin Skrtel (Liverpool), Jan Durica (Hannover), Radoslav Zabavnik (Mainz), Marek Cech (West Bromwich Albion), Kornel Salata (Slovan Bratislava)
Miðjumenn:
Kamil Kopunek (Spartak Trnava), Jan Kozak (Timisoara), Juraj Kucka (Sparta Prague), Marek Sapara (Ankaragucu), Marek Hamsik (Napoli), Vladimir Weiss (Manchester City), Miroslav Stoch (Chelsea), Zdeno Strba (Xanthi)
Sóknarmenn:
Erik Jendrisek (Schalke), Robert Vittek (Ankaragucu), Martin Jakubko (Saturn Moscow), Filip Holosko (Besiktas), Stanislav Sestak (Bochum)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.



