Í dag eru 6 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Brasilíu.
Brasilía verður í G-riðli:
G-Riðill
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal
Brasilía verður í G-riðli:
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal
Þjálfari: Dunga
Sæti á FIFA listanum: 1
Leikjahæsti maður: Cafu – 142
Markahæsti maður: Pelé – 77
Stærsti sigur: 14-0 á móti Níkaragúa 1975
Versta tap: 6-0 á móti Úrúgvæ 1920
Margir telja að Brasilía sé sigurstranglesta liðið í keppninni í sumar, en þeim hefur gengið mjög vel upp á síðkastið. Liðið var best í undankeppnisriðlinum í Suður-Ameríku og þeir unnu Álfukeppnina í fyrra sumar. Það væri þess vegna mikil vonbrigði fyrir landið allt ef að þeir komast ekki allavegana í úrslit í sumar.
Sóknin verður að teljast sem aðal styrkleikur Brasilíu, en það er ekki að segja að restinn af liðinu sé slakkt. Hraðar skyndisóknir og frábær föst leikatriði eru stór partur af leikskipulagi þeirra og verða lið að passa sig á því í sumar.
Einn helsti veikleiki liðsins er að þeir eru oft í miklum erfiðileikum með að brjóta niður lið sem verjast mikið. Sendingarnar hjá þeim eru ekki alltaf nógu nákvæmar til að skapa færi.
Saga:
Brasilía er talið vera besta landslið allra tíma, en liðið hefur unnið HM 5 sinnum: 1958, 1962, 1970, 1994 og 2002. Þeim hefur einning alltaf tekist að tryggja sér sæti á HM.
Brasilía hefur einning unnið Álfukeppnina þrisvar, Suður-Ameríku keppnina 8 sinnum og hafa fenguð tveir silfurmedalíur á Ólimpíuleikunum.
Gengi í undankeppninni:
Brasilía endaði í fyrsta sæti í undankeppninni, en voru aðeins 1.stigi frá Chile og Paragvæ. Liðið tapaði aðeins tvisvar, á móti Bólivíu og Paragvæ, en þeir gerðu hinsvegar 7 jafntefli, oftar en nokkuð annað lið.
Brasilía var markahæsta liðið í riðlinum með 33 mörk og þeir hleyptu aðeins inn 11 mörkum, minna en nokkuð annað lið.
Lykilmenn:
Kaka (Real Madrid)
Luis Fabiano (Sevilla)
Julio Cesar (Inter)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Brasilía vinni HM: 23.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Chile (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Spánn (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
1. sæti: 70.6%
2. sæti 21.1%
3. sæti 7.3%
4. sæti 0.9%
Líkur að Brasilía fari áfram úr riðlinum: 91.8%
“Við höfum þurft að hlusta á mikla neikvæði um þetta lið, en gleðin og viljinn til að spila fyrir landsliðið er eina sem skiptir máli.” – Dunga
23. manna hópur
Markmenn:
Julio Cesar (Inter Milan), Doni (Roma), Heurelho Gomes (Tottenham)
Varnarmenn:
Maicon (Inter Milan), Dani Alves (Barcelona), Lucio (Inter Milan), Juan (Roma), Luisao (Roma), Thiago Silva, Gilberto (Cruzeiro), Michel Bastos (Lyon)
Miðjumenn:
Gilberto Silva (Panathinaikos), Felipe Melo (Juventus), Josue (Wolfsburg), Elano (Galatasaray), Ramires (Benfica), Kleberson (Flamengo), Kaka (Real Madrid), Julio Baptista (Roma)
Sóknarmenn:
Robinho (Santos/Manchester City), Nilmar (Villarreal), Luis Fabiano (Sevilla), Grafite (Wolfsburg)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.


