Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 06. júní 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol 
Liðin á HM: Norður-Kórea
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru aðeins 5 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Norður-Kóreu.
Norður-Kórea verður í G-riðli:
G-Riðill
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal

Þjálfari: Kim Jong-Hun
Sæti á FIFA listanum: 103
Leikjahæsti maður: Kim Yong-Jun – 53
Markahæsti maður: Jong Tae-Se – 14
Stærsti sigur: 21-0 á móti Gvam 2005
Versta tap: 6-1 á móti Búlgaríu 1974

Norður-Kórea er dularfyrsta þjóðin á HM í sumar, en ekki mikið er vitað um þetta lið. Erlendum fréttamönnum er bannað að fylgjast með æfingum liðsins og liðið hefur ekki oft tekið þátt í stórmótum. Það verður þess vegna spennandi að sjá hvernig þessari þjóð tekst að kljást við risa eins og Brasilíu og Portúgal í sumar.

Aðal styrkleikur liðsins er augljóslega vörnin. Norður-Kórea fékk aðeins á sig 7 mörk í 16 undankeppnis leikjum. Með fimm manna vörn eru þeir sáttir að liggja aftur á vellinum og sækja svo með hröðum skyndisóknum.

Sóknarleikur liðsins er þvó ekki upp á marga fiska, en þeir náðu einungis að skora 11 mörk í 14 leikjum í undankeppninni. Fyrir lið með enga reynslu á stórmótum gæti það orðið mjög erfitt að hafa ekki sóknarmann sem getur unnið leiki.

Saga:

Norður-Kórea hefur einu sinni tekið þátt á HM, en það var árið 1966. Á þessu móti náði liðið að tryggja sér ein óvæntustu úrslit í sögu HM er þeir tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitinum með sigri á Ítölum. Þeir duttu svo út á móti Portúgal 5-3, en komust þó í 3-0.

Besti árangur þeirra í Asíu bikarnum var fjórða sætið sem þeir náðu 1980.

Gengi í undankeppninni:

Norður-Kórea þurfti að fara í gegnum erfiða undankeppni til þess að tryggja sér sæti á HM í sumar. Þeir byrjuðu á því að lenda í öðru sæti í fyrsta riðlakeppninni, en þar fékk liðið ekki á sig eitt einasta mark, og náði til að nefna tveimur 0-0 jafnteflum á móti nágrönnum sínum í suðri.

Í seinni riðlakeppninni gekk þeim ekki alveg jafn vel, en náðu þrátt fyrir það að ná öðru sætinu aftur, 4.stigum á eftir Suður-Kóreu. Liðið var hinsvegar aðeins á undan Sádí Arabíu á markamuni, en úrslitin réðust á síðasta leikdag er liðin gerðu markalaust jafntefli.

Lykilmenn:

Jong Tae Se (Kawasaki Frontale)
Hong Yong Jo (FC Rostov)
An Yong Hak (Omiya Ardija)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Norður-Kórea vinni HM: 0.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Chile (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Spánn (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 0.7%
2. sæti 4.7%
3. sæti 17.4%
4. sæti 77.1%





Líkur að Norður-Kórea fari áfram úr riðlinum: 5.4%

“Við erum mjög sjálfstraustir. Við erum mikið sterkari en áður.”– Kim Jong-Hun

23. manna hópur

Markmenn:
Kim Myong-gil, Kim Myong-won (both Amrokgang), Ri Myong-guk** (Pyongyang City)

Varnarmenn:
Cha Jong Hyok (Amrokgang), Ri Jun Il (Sobaeksu), Ri Gwang Chon (April 25), Nam Song Chol (April 25), Pak Nam Chol (Amrokgang), Ri Kwang Hyok (Kyonggongop), Pak Chol Jin (Amrokgang)

Miðjumenn:
Ji Yum Nam (April 25), Mun In Guk (April 25), Pak Sung Hyok (Sobaeksu), Ri Chol Myong (Pyongyang City), Pak Nam Chol (April 25), An Yong Hak (Omiya Ardija), Kim Kyong Il (Rimyongsu), Kim Yong Jun (Pyongyang City)

Sóknarmenn:
Hong Yong Jo (FC Rostov), An Chol Hyok (Rimyongsu), Jong Tae Se (Kawasaki Frontale), Choe Kum Chol (April 25), Kim Kum Il (April 25)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
**Norður-Kóreu menn skráðu Ri Myong-guk sem markmann, en hann er í raun sóknarmaður. Þeir reyndu að leika á FIFA þar sem að öll lið verða að vera með 3 markmenn. FIFA hefur hinsvegar sagt að Ri Myong-guk verði að spila í marki.
Slapp
banner
banner
banner