Í dag eru aðeins 4 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Fílabeinsstrandar.
Fílabeinsströndin verður í G-riðli:
G-Riðill
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal
Fílabeinsströndin verður í G-riðli:
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal
Þjálfari: Sven-Göran Eriksson
Sæti á FIFA listanum: 27
Leikjahæsti maður: Didier Drogba – 80
Markahæsti maður: Didier Drogba – 44
Stærsti sigur: 6-0 á móti Madagaskar 2001
Versta tap: 6-2 á móti Gana 1971
Fílabeinsströndin tryggði sér sæti á HM annað árið í röð og mun þurfa að spila á móti toppliðum aftur í sumar eins og síðast. Árið 2006 spiluðu þeir á móti Argentínu og Hollandi og núna eru það Brasilía og Portúgal sem að liðið verður að kljást við. Með marga góða leikmenn er mikil von bundinn við Fílabeinsströndina.
Sóknarkraftur Fílabeinsstrandarinnar er aðal styrkleikur liðsins. Með menn eins og
Didier Drogba, Salomon Kalou, Gervinho, Bakari Kone verður erfitt fyrir ‚Svennis‘ að stilla upp liðinu. Flestir af þessum leikmönnum spila í stórum Evrópskum liðum sem verður stór plús fyrir liðið.
Helsti veikleiki liðsins er þó að allar þessar stjörnur hafa átt það til að rífast, enda eru stór ‚egó‘ í liðinu. Þessi litla liðsheild gæti orðið liðinu að falli.
Liðið varð fyrir miklu áfalli þegar Didier Drogba handleggsbrotnaði um daginn. Hann fór í aðgerð sem gekk vel, og liðið, og allt landið, vonar að þessi frábæri sóknarmaður komist á HM.
Saga:
Fílabeinsströndin er að taka þátt á HM í annað skiptið í sögu landsins. Síðast voru þeir á HM árið 2006 þegar þeir voru líka í erfiðum riðli.
Liðið hefur unnið Afríkukeppnina einu sinni: 1992, og þeir náðu fjórða sæti í Álfukeppninni sama árið.
Gengi í undankeppninni:
Undankeppnin hjá Fílabeinsströndinni var næstum því fullkomin. Liðið endaði í fyrsta sæti, fjórum stigum á undan Búrkína Fasó. Þeir gerðu aðeins eitt jafntefli, og unnu hina leikina. Liðið skoraði 19 mörk og fengu aðeins 4 mörk á sig.
Lykilmenn:
Didier Drogba (Chelsea)
Kolo Toure (Manchester City)
Gervinho (Lille)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Fílabeinsströndin vinni HM: 1.5%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Chile (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Spánn (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
1. sæti: 14.1%
2. sæti 37.0%
3. sæti 37.8%
4. sæti 11.1%
Líkur að Fílabeinsströndin fari áfram úr riðlinum: 51.1%
“ Við erum í mjög erfiðum riðli. Við höfum mikla virðingu fyrir öllum liðinum, og ég held að þau hafa virðingu fyrir okkur. Við erum með gott lið og marga góða fótboltamenn. ”– Sven-Göran Eriksson
23. manna hópur
Markmenn:
Boubacar Barry (Lokeren), Aristides Zogbo (Maccabi Netanya), Daniel Yeboah (ASEC Abidjan)
Varnarmenn:
Souleymane Bamba (Hibernian), Arthur Boka (VfB Stuttgart), Guy Demel (Hamburg SV), Emmanuel Eboue (Arsenal), Steve Gohouri (Wigan Athletic), Siaka Tiene (Valenciennes), Kolo Toure (Manchester City), Benjamin Brou Angoua (Valenciennes)
Miðjumenn:
Jean-Jacques Gosso Gosso (Monaco), Abdelkader Keita (Galatasaray), Emmanuel Kone (International Curtea Arges), Gervais Yao Kouassi (Lille), Christian Koffi Ndri (Sevilla), Cheik Ismael Tiote (Twente Enschede), Yaya Toure (Barcelona), Didier Zokora (Sevilla)
Sóknarmenn:
Aruna Dindane (Lekhwiya), Seydou Doumbia (Young Boys Berne), Didier Drogba (Chelsea), Salomon Kalou (Chelsea)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




