Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 08. júní 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol 
Liðin á HM: Portúgal
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru aðeins 3 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Portúgals.
Portúgal verður í G-riðli:
G-Riðill
Brasilía
Norður-Kórea
Fílabeinsströndin
Portúgal

Þjálfari: Carlos Queiroz
Sæti á FIFA listanum: 3
Leikjahæsti maður: Luís Figo – 127
Markahæsti maður: Pauleta – 47
Stærsti sigur: 8-0 á móti Kúveit 2003
Versta tap: 10-0 á móti Englandi 1947

Portúgalska landsliðið hefur verið vaxandi síðustu árin, en liðið náði frábærum árangri á síðasta HM er þeir náðu fjórða sæti. Undankeppnin var samt ekki jafn góð og margir hefðu vonað, en þó er búist við að Portúgal nái að stríða stærri liðinum í keppninni, og nái jafnvel að komast langt.

Helsti styrkleikur liðsins er hin sterka miðja liðsins. Miðja þeirra hefur upp á að bjóða góða varnarsinnaða miðjumenn á borð við Raul Meireles og Pepe, jafnt sem sóknarsinnaða, með leikmenn eins og Cristiano Ronaldo, Simao og Deco að spila fyrir aftan sóknina.

Fyrir framan þessa miðju er hinsvegar ekki mikið að finna, en Portúgalar spila oftar en ekki með einn sóknarmann fremst, en í sumar verður það líklega Liedson sem að fær það verkefni. Honum hefur hinsvegar gengið illa að skora í landsliðinu, og mun verður því miðjan að sjá um flest mörk liðsins, sem gæti orðið vandamál á móti stærri liðinum.

Saga:

Portúgalar hafa aðeins tryggt sér sæti á HM fimm sinnum. Fyrsta skiptið var árið 1966, en þá náðu þeir þriðja sætinu, sem er þeirra besti árangur á HM til þessa.

Liðið hefur aldrei unnið stórmót, en þeir komust í úrslitin á EM árið 2004. Portúgalar lentu í fjórða sæti á Ólimpíuleikinum árið 1996.

Gengi í undankeppninni:

Portúgölum gekk ekki jafn vel og þeim hefði vonað í undankeppninni fyrir HM. Þeir voru í riðli með Danmörku, Svíþjóð og Ungverjalandi, og endaði liðið í öðru sæti, 2 stigum á eftir Dönum.

Portúgalar gerðu fjögur jafntefli, sem varð þeim næstum því að falli, en þeir enduðu aðeins einu stigi á undan Svíum. Þeir náðu samt að skora meiri mörk en hin liðin, en þeir skoruðu 17 mörk og fengu aðeins á sig 5.

Lykilmenn:

Cristiano Ronaldo (Real Madrid)
Ricardo Carvalho (Chelsea)
Raul Meireles (Porto)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Portúgal vinni HM: 1.6%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Chile (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Spánn (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Holland (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 14.5%
2. sæti 37.1%
3. sæti 37.5%
4. sæti 10.8%





Líkur að Portúgal fari áfram úr riðlinum: 51.7%

“Við erum ekki sigurstranglegasta liðið. Við erum samt með frábært lið, með mjög góðum leikmönnum, og við getum farið langt. ”– Deco

23. manna hópur

Markmenn:
Eduardo (Sporting Braga), Daniel Fernandes (Iraklis), Beto (Porto)

Varnarmenn:
Miguel (Valencia), Paulo Ferreira (Chelsea), Ricardo Carvalho (Chelsea), Bruno Alves (Porto), Pepe (Real Madrid), Rolando (Porto), Ricardo Costa (Lille), Duda (Malaga), Fabio Coentrao (Benfica)

Miðjumenn:
Pedro Mendes (Sporting Lisbon), Tiago (Atletico Madrid), Deco (Chelsea), Raul Meireles (Porto), Miguel Veloso (Sporting Lisbon), Simao (Atletico Madrid), Ruben Amorim (Benfica)

Sóknarmenn:
Danny (Zenit), Liedson (Sporting Lisbon), Hugo Almeida (Werder Bremen), Cristiano Ronaldo (Real Madrid)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner
banner