Í dag eru aðeins 2 dagar fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Chile.
Chile verður í F-riðli:
G-Riðill
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn
Chile verður í F-riðli:
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn
Þjálfari: Marcelo Bielsa
Sæti á FIFA listanum: 18
Leikjahæsti maður: Leonel Sanchez – 84
Markahæsti maður: Marcelo Salas – 37
Stærsti sigur: 7-0 á móti Armeníu 1997
Versta tap: 7-0 á móti Brasilíu 1959
Chile hafa aldrei verið ‚stórt‘ lið í Suður-Ameríku. Léleg stjórn og miklar breytingar í landsliðinu hafa þýtt það að Chile hefur ekki náð að taka næsta skrefið. Þeir ná samt sem áður oft að tryggja sér sæti á HM.
Helsti styrkleikur liðsins er að það er mjög sókndjarft. Chile liðið hættir næstum því aldrei að sækja, meira að segja þegar þeir eru að vinna. Þeir eru með mjög nákvæmt leikkerfi sem Bielsa hannaði, og það er á þessu kerfi sem að sóknarleikur liðsins byggist á.
Vörn liðsins er hinsvegar aðal veikleiki þeirra. Með aðeins 3.manna varnarlínu og með lið í stöðugri pressu, gerast oft mistök. Liðið er líka með nokkuð lága varnarlínu, sem gerir það að verkum að erfitt verður fyrir liðið að kljást við háa sóknarmenn í sumar og að verjast í föstum leikatriðum.
Saga:
Chile taka þátt í sínu sjöunda HM í sumar. Þeim tókst fyrst að komast á HM árið 1930, en besti árangur þeirra var 1962 þegar liðið náði þriðja sætinu, en það var líka á heimavelli Chile.
Liðið hefur fjóru sinnum náð silfri í Copa America, og þeir náðu brons medalíu á Ólimpíuleikunum árið 2000.
Gengi í undankeppninni:
Chile gekk mjög vel í undankeppninni og lenti í öðru sæti í riðlinum, aðeins 1.stigi á eftir Brasilíu. Það vakti athygli að Chile gekk mjög vel í útileikjunum, en þeim hefur ekki alltaf gengið vel á útivöllum.
Liðið skoraði 32 mörk, en það er aðeins einu marki minna en Brasilía. Þeir fengu samt á sig 22 mörk, sem eru fleiri mörk en hin liðin sem komust áfram úr riðlinum.
Lykilmenn:
Humberto Suazo (Real Zaragoza)
Alexis Sanchez (Udinese)
Matias Fernandez (Sporting CP)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Chile vinni HM: 0.6%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Fílabeinsströndin (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Brasilía (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
1. sæti: 11.8%
2. sæti 28.7%
3. sæti 30.6%
4. sæti 29.0%
Líkur að Chile fari áfram úr riðlinum: 40.4%
“Það er ekki til lélegt lið. Við verðum að gefa 100% í hverjum leik. ”– Marcelo Bielsa
23. manna hópur
Markmenn:
Claudio Bravo (Real Sociedad), Miguel Pinto (Universidad de Chile), Luis Marin (Union Espanola)
Varnarmenn:
Pablo Contreras (PAOK), Ismael Fuentes (Universidad Catolica), Mauricio Isla (Udinese), Gary Medel (Boca Juniors), Gonzalo Jara (West Brom), Waldo Ponce (Universidad Catolica), Arturo Vidal (Bayer Leverkusen)
Miðjumenn:
Carlos Carmona (Reggina), Marco Estrada (Universidad de Chile), Matias Fernandez (Sporting Lisbon), Gonzalo Fierro (Flamengo/Brazil), Rodrigo Millar (Colo Colo), Rodrigo Tello (Besiktas), Jorge Valdivia (Al-Ain/United Arab Emirates)
Sóknarmenn:
Jean Beausejour (America), Mark Gonzalez (CSKA Moscow), Fabian Orellana (Xerez/), Esteban Paredes (Colo Colo), Alexis Sanchez (Udinese), Humberto Suazo (Real Zaragoza)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.

