Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 10. júní 2010 16:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol 
Liðin á HM: Hondúras
Mynd: Fótbolti.net
Í dag eru aðeins 1 dagur fram að Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net mun fram að móti kynna liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Hondúras.
Hondúras verður í H-riðli:
H-Riðill
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn

Þjálfari: Reinaldo Rueda
Sæti á FIFA listanum: 38
Leikjahæsti maður: Amado Guevara – 134
Markahæsti maður: Carlos Pavon – 57
Stærsti sigur: 13-0 á móti Níkaragúa 1947
Versta tap: 10-1 á móti Gvatemala 1921

Landslið Hondúras snýr nú aftur á HM eftir 28 ára fjarveru. Liðið hefur sjaldan riðið feitum hestum á alþjóðlega sviðinu en þeim hefur gengið einstaklega vel í ár. Unglingslandsliðs Hondúras hafa einnig tryggt sér sæti á stórmótum, jafnframt sem að Hondúras var á Ólimpíuleikjunum í fyrra. Framtíðin er björt fyrir þetta land, og góður árangur í sumar mundi auðvitað hjálpa.

Vörnin þeirra er helsti styrkleikur liðsins, en Hondúras fékk aðeins inn 11 mörkum, en það er minna en hin liðin í undankeppninni. Liðið treystir einnig á sterka miðju, og sóknarleikur þeirra er aðalega skyndisóknir, enda er liðið með nokkra hraða sóknarmenn.

Hondúras hafa oft verið slakir á útivelli, en Reinaldo Rueda tekur oft mjög varnarsinnað lið á útivelli, sem margir hafa gagnrýnt hann fyrir. Liðið er líka er ekki vant því að spila á stórmótum, en það eru aðeins nokkrir leikmenn í liðinu sem spila hafað í stórum liðum.

Saga:

Hondúras er einungis að taka þátt á HM í annað sinn. Fyrsta skiptið var árið 1982, en þá náði liðið að koma mörgum á óvart er þeir gerðu 1-1 jafntefli við Spánverja, sem voru á heimavelli.

Hondúras hafa ekki náð mörgum alþjóðlegum titlum, en þeir náðu 3.sæti í Copa America 2001 og 2.sæti í Norður-Ameríku bikarnum 1991.

Gengi í undankeppninni:

Hondúras liðinu gekk vel í undankeppninni, en þeir voru aðeins nokkrum stigum á eftir Bandaríkjunum og Mexíkó. Liðið var hinsvegar jafnt á stigum með Kosta Ríku.

Staðan í riðlinum var ráðin á síðasta leikdegi er Bandaríkin sigruðu Kosta Ríka með marki á 94.mín.

Lykilmenn:

Carlos Pavon (Real Espana)
David Suazo (Genoa)
Amado Guevara (Motagua)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Hondúras vinni HM: 0.3%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Fílabeinsströndin (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Brasilía (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 9.6%
2. sæti 24.7%
3. sæti 30.7%
4. sæti 35.0%





Líkur að Hondúras fari áfram úr riðlinum: 34.3%

“Við erum ekki undir neinni pressu, og það gæti verið gott fyrir okkur.”– Reinaldo Rueda

23. manna hópur

Markmenn:
Ricardo Canales (Motagua), Noel Valladares (Olimpia), Donis Escober (Olimpia)

Varnarmenn:
Victor Bernardez (Anderlecht), Maynor Figueroa (Wigan), Oscar Garcia (Olimpia), Sergio Mendoza (Motagua), Emilio Izaguirre (Motagua), Johnny Palacios (Olimpia), Mauricio Sabillon (Hangzhou Luchen), Osman Chavez (Platense)

Miðjumenn:
Edgard Alvarez (Bari), Julio Cesar de Leon (Torino), Roger Espinoza (Kansas City Wizards), Amado Guevara (Motagua), Ramon Nunez (Olimpia), Wilson Palacios (Tottenham Hotspur), Hendry Thomas (Wigan), Danilo Turcios (Olimpia)

Sóknarmenn:
David Suazo (Genoa), Georgie Welcome (Motagua), Carlos Pavon (Real Espana), Walter Martinez (Marathon)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp