Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 11. júní 2010 10:00
Tryggvi Páll Kristjánsson
Heimild: Goal.com | Sky Sports | Castrol 
Liðin á HM: Sviss
Mynd: Fótbolti.net
Í dag byrjar Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Fótbolti.net hefur fram að móti kynnt liðin sem taka þátt og í dag kynnum við lið Sviss.
Sviss verður í H-riðli:
H-Riðill
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn

Þjálfari: Ottmar Hitzfeld
Sæti á FIFA listanum: 24
Leikjahæsti maður: Heinz Hermann - 117
Markahæsti maður: Alexander Frei - 40
Stærsti sigur: 9-0 á móti Litháen 1924
Versta tap: 9-0 á móti Ungverjalandi 1911

Sviss tekur aftur þátt á HM í sumar, en þetta er annað árið í röð sem þeim tekst það. Í fyrra duttu þeir út í 16-liða úrslitinum þar sem þeir töpuðu á móti Úkraínu í vítaspyrnukeppni, en liðið fékk þann titil að vera fyrsta liðið til að halda hreinu á HM. Ottmar Hitzfeld sem er frægur fyrir að hafa til dæmis unnið Meistaradeildina með Dortmund og Bayern München á sínum tíma, er nú við stórnvölin hjá Sviss og það eru gerðar miklar væntingar til þessa liðs. Þjóðin vonast að þeir nái að koma óvart í sumar, líkt og undir-17 ára landsliðið gerði 2009 er þeir urðu Evrópumeistarar.

Til að það geti gerst, verður Hitzfeld að passa upp á liðsheildina. Hún er mikilvægur partur í velgengni liðsins, sem og heilsa lykilmanna liðsins. Menn eins og Frie, Barnetta og Benaglio þurfa allir að vera heilir ef liðið ætlar sér áfram í sumar.

Sviss á það til að ná lélegum úrslitum í leikjum sem þeir ættu að vinna, en það getur verið stór veikleiki. Þeir þurfa þess vegna að passa sig að verða ekki of sigurvissir ef þeir byrja vel.

Saga:

Sviss mun taka þátt í sínu áttunda HM í sumar. Fyrsta sinn sem Sviss var á HM, var árið 1934. Besti árangur þeirra á HM eru 8-liða úrslit, sem liðið hefur náð þrisvar: 1934, 1938 og 1954.

Sviss hefur aldrei unnið titil á stórmóti, en þeir unnu einu sinni silfurmedalíu á Ólimpíuleikunum árið 1924.

Gengi í undankeppninni:

Sviss byrjaði hörmulega í undankeppninni, en þeir gerðu fyrst jafntefli við Ísrael og töpuðu svo ótrúlega fyrir Lúxemborg á heimavelli. Þeim gekk hinsvegar mikið betur eftir það og enduðu í fyrsta sæti í riðlium, einu stigi á undan Grikklandi. Sviss tryggðu sér sæti á HM með 0-0 jafntefli við Ísrael í síðasta leik riðilsins.

Lykilmenn:

Alexander Frei (Basel)
Tranquillo Barnetta (Leverkusen)
Diego Benaglio (Wolfsburg)

Castrol tölfræði:*

Líkur að Sviss vinni HM: 0.4%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Fílabeinsströndin (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Brasilía (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Spánn (Úrslit)
Tölfræði í riðlinum
1. sæti: 10.5%
2. sæti 26.0%
3. sæti 30.5%
4. sæti 32.9%





Líkur að Sviss fari áfram úr riðlinum: 35.5%

“Allt getur gerst í leik. Ef við værum að spila tvo leiki við Spán gæti það orðið erfitt, en það er allt öðruvísi í einum leik.”– Ottmar Hitzfeld

23. manna hópur

Markmenn:
Diego Benaglio (Wolfsburg), Marco Wolfli (Young Boys), Johnny Leoni (Zürich)

Varnarmenn:
Mario Eggimann (Hannover), Stephane Grichting (Auxerre), Stephan Lichtsteiner (Lazio), Ludovic Magnin Philippe Senderos (Fulham), Steve von Bergen (Hertha Berlin), Reto Ziegler (Sampdoria)

Miðjumenn:
Tranquillo Barnetta (Bayer Leverkusen), Valon Behrami (West Ham), Gelson Fernandes (Saint-Etienne), Benjamin Huggel (Basle), Gokhan Inler (Udinese), Marco Padalino (Sampdoria), Pirmin Schwegler (Eintracht Frankfurt), Xherdan Shaqiri (Basel)

Sóknarmenn:
Albert Bunjaku (Nurnberg), Eren Derdiyok (Bayer Leverkusen), Alexander Frei (Basel), Blaise Nkufo, Hakan Yakin (Luzern)

*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.
Slapp
banner