Í dag byrjar Heimsmeistaramótið í Suður-Afríku. Fótbolti.net hefur fram að móti kynnt liðin sem taka þátt og síðast en ekki síst kynnum við lið Spánverja.
Spánn verður í H-riðli:
H-Riðill
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn
Spánn verður í H-riðli:
Chile
Hondúras
Sviss
Spánn
Þjálfari: Vicente de Bosque
Sæti á FIFA listanum: 2
Leikjahæsti maður: Andoni Zubizarreta – 126
Markahæsti maður: Raúl – 44
Stærsti sigur: 13-0 á móti Níkaragúa 1947
Versta tap: 10-1 á móti Gvatemala 1921
Evrópumeistarar Spánar mæta í mótið í sumar sem eitt sigurstranglegasta liðið í keppninni. Liðið var oft gagnrýnt fyrir að hafa ekki staðið sig í stórmótum, en liðið hefur komist lengra en 8-liða úrslitin í HM. Eftir frábæran sigur fyrir í Austurríki eru miklar væntingar fyrir þessu liði, enda frábærir menn þar á ferð.
Helsti styrkleiki spænska liðsins er leikstíll þeirra. Luis Aragones byggði liðið í kringum Xavi og Iniesta, og lét liðið spila líkt og Barcelona gerir. Með menn í sókninni eins og Villa og Torres er ekki erfitt að sjá af hverju þeir ættu að geta skorað nokkur mörk í sumar.
Helsti veikleiki liðsins er þó að þeir eiga í miklum erfiðleikum með lið sem ná að pirra þá. Þegar lið ná að hægja á leik Spánverjana með litlum brotum, og fá fullt af föstum leikatriðum, eru spænska liðið oft ráðalaust.
Saga:
Spánn hefur nú tryggt sér sæti á HM 13 sinnum. Fyrsta skiptið þeirra á HM var árið 1934 í Mexíkó, en þá náðu þeir 8-liða úrslitum. Það er jafnframt besti árangur landsliðsins á HM, en þeim hefur þó tekist að endurtaka þann árangur, en það gerðu þeir í 1986, 1994 og 2002.
Spænska landsliðið hefur þó náð að vinna EM, en það gerðu þeir árið 1964 og aftur núna fyrir tveimur árum síðan. Liðið hefur einning unnið gullmedalíu á Ólympíuleikunum árið 1992.
Gengi í undankeppninni:
Spánverjar áttu ekki í miklum vandræðum að tryggja sér sæti á HM í sumar. Liðið vann alla 10 leikina sína í undankeppninni, og fékk aðeins á sig 5 mörk. Liðið skoraði svo 28 mörk í riðlinum, en aðeins England skoraði fleiri mörk en það í Evrópu.
Lykilmenn:
Gerard Piqué (Barcelona)
Xavi (Barcelona)
David Villa (Barcelona)
Castrol tölfræði:*
Líkur að Spánn vinni HM: 17.0%
Leiðin í úrslitin:
1. sæti í riðlinum:
• Fílabeinsströndin (16 liða úrslit)
• Ítalía (8 liða úrslit)
• Argentína (Undanúrslit)
• Brasilía (Úrslit)
2. sæti í riðlinum:
• Brasilía (16 liða úrslit)
• Holland (8 liða úrslit)
• England (Undanúrslit)
• Argentína (Úrslit)
1. sæti: 68.2%
2. sæti 20.6%
3. sæti 8.2%
4. sæti 3.1%
Líkur að Spánn fari áfram úr riðlinum: 88.8%
,,Þetta er tækifærið okkar og við viljum nota það. Það er komið að okkur, og við viljum að halda áfram að spila eins og við erum að gera. ”– Fernando Torres
23. manna hópur
Markmenn:
Iker Casillas (Real Madrid), Pepe Reina (Liverpool), Victor Valdes (Barcelona)
Varnarmenn:
Raul Albiol (Real Madrid), Alvaro Arbeloa (Real Madrid), Joan Capdevila (Villarreal), Carlos Marchena (Valencia), Gerard Pique (Barcelona), Carles Puyol (Barcelona), Sergio Ramos (Real Madrid)
Miðjumenn:
Xabi Alonso (Real Madrid), Sergio Busquets (Barcelona), Cesc Fabregas (Arsenal), Andres Iniesta (Barcelona), Javi Martinez (Athletic Bilbao), David Silva, (Valencia), Xavi (Barcelona)
Sóknarmenn:
Jesus Navas (Sevilla), Juan Mata (Valencia), Pedro (Barcelona), Fernando Llorente (Athletic Bilbao), Fernando Torres (Liverpool), David Villa (Barcelona)
*Castrol safnar samann tölfræði úr fótbolta og reiknar út alla möguleika sem gætu spilast út þ.a.m. á HM. Tölfræðin hér útskýrir: líkurnar að XXX vinni HM, leið þeirra í úrslitin ef þeir lenda í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum, og líkurnar á því að XXX lendi í 1,2,3 og 4 sæti í riðlinum.




