Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   lau 12. júní 2010 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters 
Leiðinlegi lúðurinn er 13. maður Suður Afríkumanna
Þrátt fyrir að aðeins tveir leikir séu búnir af Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku er vuvuzela lúðurinn þegar farinn að gera knattspyrnuáhugamenn heima í stofu brjálaða. Vuvuzela lúðurinn skapar stöðuga suðið sem má heyra frá leikjum mótsins eins og heyrðist vel í gær.

Tugir þúsunda stuðningsmanna í stúkunni voru með slíkan lúður í stúkunni á meðan fyrstu tveir leikir mótsins fóru fram í gær og fjölmargir tóku sér ekki einu sinni hlé í hálfleiknum. Eini friðurinn var rétt á meðan þjóðsöngvarnir voru leiknir.

,,Þetta er okkar 13. maður, þetta er okkar vopn," sagði Aaron Mokoena fyrirliði Suður Afríku sem gerði 1-1 jafntefli við Mexíkó í opnunarleiknum.

Fjöldi leikmanna annarra liða hefur kvartað yfir suðinu sem kemur frá lúðrinum og segja hann draga úr liðunum og sjónvarpsáhorfendur eru líka ósáttir og segja þetta hljóma eins og risabýflugur og sé mjög pirrandi.

Bert van Marwijk þjálfari Hollendinga hefur stigið skrefinu lengra og bannað lúðurinn frá æfingum liðsins en mexíkóski varnarmaðurinn Carlos Salcido hafði ekki áhyggjur.

,,Þetta er ekkert vandamál. Suður Afríkumenn eru að skemmta sér og það er frábært. Við vorum einbeittir og þetta truflaði okkur ekki," sagði hann.
Slapp
banner