Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 07. júlí 2010 17:21
Magnús Már Einarsson
Heimild: Soccernet 
West Ham var búið að semja við Klose
West Ham var búið að semja við Miroslav Klose framherja FC Bayern áður en HM hófst.

Eftir fjögur mörk Klose á HM er hins vegar líklegt að ekkert verði af samningnum.

Bayern var tilbúið að leyfa hinum 32 ára gamla Klose að fara frítt eftir að hann skoraði einungis sex mörk á síðustu leiktíð.

Gott gengi hans á HM þýðir hins vegar að Bayern mun líklega ekki leyfa honum að fara án greiðslu og því er samingurinn við West Ham úr myndinni.

,,Við vorum með kláran samning fyrir HM eftir að hann átti slæmt tímabil í Þýskalandi. Hins vegar er ólíklegt að þetta gerist eftir það sem hann hefur gert á HM," sagði David Sullivan annar af eigendum West Ham.
Slapp
banner
banner