Heimild: Sky Sport
John Mensah, fyrirliði Ghana og leikmaður Lyon í Frakklandi vill ólmur fá tækifæri til að spila í ensku úrvalsdeildinni á ný.
Mensah var á láni hjá Sunderland á síðasta tímabili og spilaði sextán leiki fyrir liðið. Hann hefur nú snúið aftur til Lyon en vill koma framtíð sinni á hreint sem fyrst. Hann viðurkennir þó að hann hafi ekki val hvar hann spili á næsta tímabili.
,,Lyon er mitt lið svo auðvitað hafa þeir eitthvað að segja um málið. Það sorglega er að ég náði aldrei að gera mitt besta hjá Lyon" sagði Mensah.
,,Ég er nú að endurhlaða rafhlöðurnar og vonast til að vera meiðslalaus á komandi tímabili."


