Andri Steinn Birgisson, miðjumaður Keflvíkinga, verðu frá keppni næstu 4-6 vikurnar en hann er tognaður á innra liðbandi í hné.
Andri Steinn meiddist í bikarleiknum gegn FH í siðasta mánuði og fór í speglun síðastliðinn föstudag.
,,Ég er rétt farinn að labba aftur. Ég er að gæla við að þetta verði fjórar vikur, það væri óskandi," sagði Andri Steinn við Fótbolta.net.
,,Þetta var ekki rifinn liðþófi eins og við héldum fyrst. Það var buist við því."
Andri Steinn kom til Keflvíkinga í vetur en hann hefur einungis leikið þrjá leiki með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar þar sem hann missti líka af byrjun móts vegna meiðsla.


